Síðdegisútvarpið

Kristnesspítali, hjólhýsabyggð, ævisaga, gervigreind á vinnumarkaði og afmæli Huppu

Stofnfundur nýrra samtaka "Björgum Kristnesspítala" fór fram á sunnudaginn en tilgangurinn er að berjast fyrir áframhaldandi starfsemi endurhæfingar á spítalanum. Uppi eru áform um að leggja niður endurhæfingarþjónustuna, sem hafa vakið áhyggjur og óánægju meðal fólks á svæðinu. Samtökin vilja að allir möguleikar verði kannaðir áður en ákvörðun er tekin, meðal annars með endurbótum á núverandi húsnæði eða byggingu nýs húsnæðis. Þau leggja áherslu á mikilvægi Kristnesspítala fyrir heilbrigðisþjónustu á Norðurlandi og vilja tryggja að starfsemin eigi sér framtíð á staðnum. María Pálsdóttir veit allt um málið og hún var á línunni.

Í skoðanagrein á Vísi "Hvað verður um störfin okkar?", sem Auður Alfa Ólafsdóttir sérfræðingur í umhverfis- og neytendamálum skrifar, er fjallað um hvernig gervigreind, sjálfvirknivæðing og loftslagsbreytingar munu hafa áhrif á íslenskan vinnumarkað og framtíð starfa. Áhrifin geta orðið mismunandi eftir starfsstéttum og samfélagshópum. Fólk á landsbyggðinni geti t.d. átt erfiðara með að finna nýja vinnu ef störfum fækkar í heimabyggð. En þarna eru líka tækifæri segir Auður Alfa og kallar eftir að launafólk fái að taka virkan þátt í að móta framtíð sína og atvinnulífsins. Auður Alfa kom til okkar.

Huppa á Kluftum, ættmóðir íslenska kúastofnsins, fæddist fyrir hundrað árum í dag. Hún þótti strax bera af öðrum kúm hvað mjólkurlagni varðaði en árið 1936 mjólkaði hún 5.390 lítra, sem þótti ótrúlegt á þeim tíma. Það var Huppu að þakka að Hrunamenn urðu leiðandi í kúabúskapnum, en kýrin er talin sérstakur gripur á heimsvísu. Til að segja okkur betur frá þessari mögnuðu kú var á línunni Helgi Valdimar Sigurðsson, formaður Nautgriparæktarfélags Hrunamanna.

Búið er að loka fyrir rafmagn og vatn í hjólhýsabyggðinni á Sævarhöfða í Reykjavík. Þingmenn Flokks fólksins lögðu í dag fram tillögu um varanlega búsetu í færanlegum búsetueiningum. Bergþóra Pálsdóttir talskona íbúanna segir þau upplifa að þau megi hvergi vera. Hún kíkti til okkar.

Og í dag hringdum við til Spánar og heyrðum í Jóhanni Hlíðar Harðarsyni sem að þessu sinni ætlar að segja okkur af hvernig niðurskurður síðusta ára á viðhaldi lestarkerfisins hefur aukið slysahættu og svo segir hann okkur af Nóbelsverðlaunum fyrir gersamlega tilgangslausar rannsóknir. Spánarspjallið er í seinni hluta þáttarins.

Leikstjórinn Inga Bjarnason heillaðist snemma af leiklistinni og leitaði víða inngöngu í heim leikhússins. Í nýrri sjálfsævisögu sem nefnist Einfætta ballerínan lýsir hún baráttu sinni við lesblindu og athyglisbrest á langri ævi og kveikir líf í minningum um samferðafólk liðinnar tíðar. Á morgun verður haldið útgáfuhóf bókarinnar en Inga kíkti til okkar og sagði frá.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Síðdegisútvarpið

Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,