
Síðdegisútvarpið
Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Borgarstjórn ákvað í gær að segja upp fimmtíu starfsmönnum borgarinnar en í heildina er fækkunin um 74 stöðugildi. Þetta er þriðja uppsagnarlotan frá því að nýr meirihluti tók við og borgarstjóri segir að hún sé sú síðasta. Borgin segir ennfremur að fækkunin beinist fyrst og fremst að miðlægri stjórnsýslu og eigi ekki að skerða daglega þjónustu við borgarbúa. Róbert Ragnarsson borgarfulltrúi og formaður stýrihóps um hagræðingu og stjórnkerfisbreytingar í borgarkerfinu kíkti til okkar.
Við tölum aðeins um húsgagnaverslun sem Íslendingar elska. Á gráleitum miðvikudegi í mars fara feðgin saman í IKEA. Ferðin tekur óvæntan snúning þegar þau lokast inni í versluninni yfir nótt. Að loknum rómuðum þríleik sínum um síldarævintýrið snýr Hallgrímur Helgason aftur í nútímann í nýstárlegri sögu um hversdag okkar allra – sem verður aldrei samur. Á föstudag verður blásið til fögnuar í bókabúð Forlagsins á Fiskislóð í tilefni af útgáfu bókarinnar en skáldið sjálft er í Búkarest. Við slógum á þráðinn til Hallgríms og tókum púlsinn á honum.
Veiðitímabil rjúpu í ár hófst á föstudaginn var. Skv heimild frá Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytinu er heimilt að veiða rjúpu frá og með föstudögum og til og með þriðjudögum á tímabili sem ákveðið er sérstaklega innan hvers veiðisvæðis. Lýkur veiði á mismundandi tímum eftir veiðisvæðum. Sölubann er á rjúpum og á það jafnt við um sölu til endursöluaðila og annarra. Jón Víðir Hauksson skotveiðimaður og fyrrum stjórnamaður í Skotvís kom til okkar og fór yfir það sem má og má alls ekki þegar kemur að rjúpnaveiðum.
Í Kveik í gær var fjallað um börn með fjölþættan vanda sem dvelja í einkareknum búsetuúrræðum. Eitt þeirra úrræða sem beint var kastljósi að í Kveik í gærkvöldi var Klettabær. Fyrrum starfsmenn sögðu meðal annars frá því að starfsfólk hefði sofið á vöktum og að vaktaálag væri gríðarlegt. Aðalheiður Ósk Þorsteinsdóttir kíkir til okkar en barnið hennar er búsett í Klettabæ sem hún segir hafa bjargað barni sínu og fjölskyldunni allri. Hún kom til okkar og lýsti reynslu sinni.
Nú stendur yfir í Las Vegas í Bandaríkjunum heimsmeistaramótið í Karaoke. Íslendingar eiga þar fulltrúa en ríflega 25 þjóðir eiga þar sína fulltrúa. Hannes Þórður Hafstein Þorvaldsson er staddur í borg syndarinnar, eins og hún er stundum kölluð, til að taka þátt í KWC í Las Vegas. Hannes Þórður var á línunni.

Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.