Síðdegisútvarpið

Hrekkjavaka, óeirðir í Frakklandi, netárásir, kótilettukvöld Samhjálpar og flóð á Spáni

Franska ríkisstjórnin kom saman á neyðarfundi í morgun eftir óeirðir helgarinnar. Yfir 700 manns eru enn í varðhaldi, yfir tvö þúsund fyrirtæki hafa orðið fyrir barðinu á mótmælendum, eldur borin að byggingum og þá hafa 150 lögreglumenn slasast. Talið er að tjón geti hlaupið á hundruðum milljóna evra. Frakklandsforseti vill að farið verði í saumana á því hvers vegna mótmælin fóru úr böndunum. Mótmælahreyfingin Gulu vestin sem skipulagði mótmælin um helgina boðar frekari mótmæli um næstu helgi. Til greina kemur að setja á útgöngubann í einhverjum borgum, en ekki hefur verið tilgreint í hvaða borgum. Ingólfur Eiríksson íslenskukennari við Sorbonne háskóla var á línunni hjá okkur.

Í síðustu viku ræddum við netárásirnar á kæli- og frystikerfi í verslunum í Evrópu og okkur langar að skoða þau mál nánar. Svona netárásir geta haft bein áhrif á raunverulegan rekstur, matvælaöryggi og jafnvel valdið tjóni á búnaði og eldsvoðum. Hvað þýðir þetta fyrir íslenskar verslanir og fyrirtæki, hversu berskjölduð eru slík kerfi og hvað við getum lært af þessum atvikum. Anton Egilsson hjá Syndis ætlar að ræða þetta við okkur sem og varnaðarorð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu til foreldra og forráðamanna barna og ungmenna við VPN-stillingu sem gerir óviðkomandi kleift að lesa og breyta netumferð þeirra. Yfir 300 ungmenni nota tæknina en lögreglan rannsakar nú sölu á fölsuðum rafrænum skilríkjum.

Árlegt kótilettukvöld Samhjálpar fer fram á miðvikudagskvöld á Hilton Reykjavik Nordica. Þá munu kokkar úr kokkalandsliðinu elda gómsætar kótilettur auk þess sem boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá með tónlist, happdrætti og óvæntum uppákomum. Allur ágóði kvöldsins rennur til starfsemi Samhjálpar sem hefur í rúma hálfa öld veitt fólki í viðkvæmri stöðu stuðning og aðstoð, meðal annars einstaklingum sem glíma við fátækt, félagslega einangrun og afleiðingar fíknivanda. Stuðningur allra þeirra er keyptu miða mun koma sér vel næstu mánuði þegar Kaffistofunni verður fundinn nýr staður og hún flutt. Alfreð Behrend mun stíga á svið á kvöldinu og segja sögu sína. Hann kíkti til okkar og sagði frá Samtökunum og hvers vegna þau eru honum dýrmæt.

Hrekkjavökuhátíðin Þollóween hefur verið haldin í Þorlákshöfn frá árinu 2018. Undirbúningur er í fullum gangi og hefur hópur kvenna sem koma að Þollóween unnið á fullu þannig að hátíðin verði sem veglegust. Hátíðin hefst eftir viku en hvernig gengur? Erla Dan Jónsdóttir er formaður hátíðarnefndarinnar og hún var á línunni hjá okkur.

Hitabeltisstormurinn Adam hefur valdið miklum flóðum í kjölfar mikillar úrkomu í austurhluta Spánar í gær, mest í Valencia héraði, og enn eru gular og appelsínugular viðvaranir í gildi á þessum slóðum. Fjöldi íslendinga býr á þessu svæði eða eiga þar orlofshús. Þá hafa stjórnvöld á Mallorca kallað eftir aðstoð frá meginlandinu við að berjast við flóðin þar. Við hringdum í Hans Birgisson sem er fasteignasali á Costa Blanca svæðinu og spurðum hann frétta.

Sem fyrr segir þá styttist í Hrekkjavökuna. Á miðvikudagskvöld verður hryllileg stemning í bóksölu stúdenta þar sem bækur og búningar taka yfir verslunina. Þá verður haldin búningakeppni, hægt að fara á blint stefnumót við bækur auk þess sem reykjavik cocktails vökvar þyrsta gesti. Auður Jónsdóttir rithöfundur og mágur hennar, Þorsteinn Bachmann leikari ætla að spá fyrir þeim sem þora með tarotlestri. Þau kíktu til okkar og drógu spil fyrir vikuna.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Síðdegisútvarpið

Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,