
Síðdegisútvarpið
Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Það bárust góðar fréttir í dag á degi íslenskrar tungu því það kemur í ljós samkvæmt nýrri könnun að lestur landsmanna er að aukast. Fólk ver að jafnaði 64 mínútum á dag í að lesa eða hlusta á bækur en í fyrra voru það 59 mínútur. Þau Hrefna Haraldsdóttir framkvæmdastjóri Miðstöðvar íslenskra bókmennta og Sverrri Norland rithöfundur og samfélagsrýnir rýndu þessi mál með okkur.
Ingvar Þóroddsson sagði sig úr Viðreisn og er genginn til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Þetta tilkynnti hann í morgun. Hann er þriðji þingmaðurinn sem segir skilið við ríkisstjórnarflokk á þessu ári, en sá fyrsti þar af sem gengur í nýjan flokk. Magnús Sigurbjörnsson og Pétur Krogh Ólafsson, sem hafa haldið úti hlaðvarpinu Korter í kosningar, komu til okkar.
Við ræddum við Bubba Morthens og Halldór Gunnar Pálsson um íslenska tungu, íslenskar bókmenntir, íslenska tónlist og nýtt jólalag, Korter í jól.
Filippseyjar stóðu uppi sem sigurvegari í fyrstu asísíku Eurovision-keppninni sem haldin var í Bangkok um helgina. Nítján ára söngkonan Carmelle keppti fyrir hönd þjóðarinnar og söng lagið Sobra-Sobra! Eurovisionfræðingurinn Felix Bergsson kom til okkar og sagði okkur aðeins nánar frá þessari keppni.
Átta skólar keppa í kvöld í úrslitum Skrekks! Unglingarnir nýta allar sviðslistir í atriðin: tónlist, dans, leiklist og gjörninga sem þau semja sjálf og eru frumsamin lög í sumum atriðum. Unglingarnir sjá líka um tæknihliðina, búninga og förðun. Fullorðnir hafa það hlutverk að styðja við uppsetningu atriðanna. Harpa Þorvaldsdóttir verkefnastjóri Skrekks og Daníel Óskar Jóhannesson sögðu okkur betur frá.

Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.