Síðdegisútvarpið

Leiðtogafundur, Pabbahelgar, girnileg orð, spunaspil, vantsskortur og myndlist

Stríðin í Íran og Úkraínu, afvopnun og viðskipti verða líklega ofarlega á baugi þegar forsetar Bandaríkjanna, Rússlands og Kína halda leiðtogafund á morgun. Aldrei í sögunni hafa leiðtogar þessara þriggja stórvelda hist þrír saman á fundi. Markús Þórhallsson fréttamaður kom til okkar.

Í síðasta þætti Fleiri Pabbahelga sem sýndur var á RÚV á sunnudag fengu landsmenn að sjá fæðingarsenu þar sem aðalpersóna þáttanna, Karen, eignast barn með keisaraskurði. Síðan hafa margir velt því fyrir sér hvernig í ósköpunum fæðingin var svona raunveruleg. Við bjölluðum í Nönnu Kristínu Magnúsdóttur,aðalleikonu, leikstjóra og handritshöfund þáttanna, sem er stödd á heimili sínu í Washington og spyrjum hana út í þessa áhrifaríku senu.

Málefni íslenskrar tungu hafa verið mikið til umfjöllunar síðustu daga. Í dag ætlum við að skoða aðeins ábyrgð stórfyrirtækja í þessari umræðu og hvað þau geta gert betur til að passa upp á íslenskuna og lyfta henni upp? Heiðdís Inga Hilmarsdóttir, verkefnastjóri sjálfbærnimála Krónunnar, og Freyja Leópoldsdóttir, forstöðumaður markaðsmála og sjálfbærni, komu til okkar.

Í Nördahorninu síðasta föstudag töluðum við um spunaspil, hlutverkaspil sem eru nokkuð vinsæl á meðal fólk sem hefur unun af spilum, samveru og sögum. Fyrrum þingmaðurinn Björn Leví Gunnarsson tölvunarfræðingur hafði samband en hann er svokallaður erkinjörður Hlutkestis, félags spunaspilara á Íslandi. Hann segir spunaspil hafa hjálpað honum að vinna úr einelti auk þess sem það hafi verið afar góður undirbúningur fyrir þingstörf. Hann kíkti til okkar og segir nánar frá þessu.

Kuldakastið síðustu daga hefur haft þau áhrif að staða í birgðageymum Akureyrarbæjar fyrir heitt vatn hefur verið fyrir neðan öryggismörk. Staðan er búin að vera viðkvæm og lítið má út af bregða. Norðurorka hefur hvatt íbúa til að fara sparlega með heitavatnið. Eyþór Björnsson forstjóri var og sagði okkur frá stöðunni í dag.

Soldið flatur Stólll og fleiri fletir er myndlistarsýning Árna Vilhjálmssonar tónlistar- og myndlistarmanns, eða Árna Vil eins og hann er kallaður. Sýningin opnar í Leyni á Akureyri á laugardag klukkan átta og Árni ætlar að kom til okkar og sagði frá.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Síðdegisútvarpið

Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,