
Síðdegisútvarpið
Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Fjárhundar eða smalahundar eru notaðir meira hérlendis en við gerðum okkur grein fyrir. Í Bændablaðinu er viðtal við bóndann á Presthólum í Norðurþingi sem er með um 600 kindur og nokkra smalahunda. Hann heitir Maríus Halldórsson og er formaður Smalahundafélags Íslands. Hefur hann meðal annars keppt erlendis í smalahundakeppnum fyrir Íslands hönd. Í október sl. sigraði hann landskeppni Smalahundafélagsins. Maríus Halldórsson var á línunni.
Mikið þrumu og eldingaveður gekk yfir Suðurlandið í nótt. Menn og dýr vöknuðu upp með andfælum í nótt. Einn þeirra er okkar maður á Suðurlandi Magnús Hlynur Hreiðarsson. Hann var á línunni.
Með hverju mælir sjónvarpsgúru Síðdegisútvarpsins í hámhorfið þessa vikuna? Ragnar Eyþórsson, sjónvarpsframleiðandi, kom með sínar hugmyndir fyrir okkur sófakartöflurnar.
Kveikur er á dagskrá RÚV í kvöld. Í þættinum er fjallað um ofbeldi og hótanir gegn lögreglumönnum. Rætt er við nokkra lögreglumenn sem hafa orðið fyrir slíku. Í þeirra málum blasir við svipað mynstur: vísbendingum var ekki fylgt eftir, lykilmenn lítið rannsakaðir og rannsóknir felldar niður. Helgi Seljan fór betur yfir þetta með okkur.
Við fræðumst um Fríbúðina í Borgarbókasafninu í Gerðubergi í þættinum en þar er einmitt allt frítt! Fólk getur komið þangað með hluti sem það þarf ekki lengur og aðrir geta fundið þeim nýtt heimili. Þar er lögð áhersla á endurnýtingu, samnýtingu og að gefa hlutum lengra líf. Atli Pálsson sérfræðingur hjá Borgarbókasafninu Gerðubergi kom til okkar.
Hákon Atli Bjarkason borðtenniskappi veitir jafningjastuðning á Grensásdeild Landspítala. Hann hefur notað hjólastól í 17 ár og sér meðal annars um að kenna hjólastólafærni, hjálpa iðjuþjálfum að velja réttu hjólastólana og ræða við fólk um hvaða möguleikar séu í boði eftir slys. Hann segist brenna fyrir að koma fólki aftur í virkni, hvort sem um sé að ræða vinnu, menningu eða íþróttir, og hjálpa því að vera sjálfbjarga í eigin lífi. Hákon kíkti til okkar og sagði okkur frá.

Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.