
Síðdegisútvarpið
Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Mikið umferðaröngþveiti gerði fólki lífið leitt í höfuðborginni. Árni Friðleifsson aðalvarðstjóri umferðardeildar Lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu var á línunni.
Það er vart fjallað um annað vestanhafs þessar mundir en ástarsamband Jensen Huang, forstjóra tæknirisans Nvidia, við meintan kínverskan njósnara. Virði hlutabréfa fyrirtækisins hríðféll við opnun markaða á mánudag og bandaríska alríkislögreglan hefur blandað sér í leikinn. En hvers vegna er þetta fyrirtæki svo mikilvægt að framhjáhald forstjórans varðar þjóðaröryggi valdamesta ríkis heims? Þórður Ingi Guðmundsson, forstöðumaður gervigreindarseturs Advania, ætlar að aðstoða okkur við að skilja það. Hann mætti til okkar.
Pete Hegseth varnarmálaráðherra Bandaríkjanna er hólpinn í bili, en ályktun um að ákæra hann til embættismissis var í gær vísað til dómsmálanefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings. Þykir því ólíklegt að málið verði afgreitt á þessu þingi en það þýðir þó ekki að því sé lokið fyrir fullt og allt. Samúel Karl Ólason blaðamaður Vísis og Þorgils Jónsson fréttamaður hér á Rúv komu til okkar og rýna í stöðuna.
Hinn árlegi Ljósafoss niður hlíðar Esjunnar verður á laugardaginn. Á sama tíma fagnar Ljósið því að vera flutt í nýtt húsnæði. Gangan er ókeypis og Sjóvá styrkir Ljósið um 2000 kr. fyrir hvern þann sem mætir við Esjurætur. Í fyrra var metþátttaka í göngunni þar sem um 900 manns tóku þátt í að lýsa upp Esjuna. Stefnt er að því að fá fleiri til að mæta. Þau Regína Björk Jónsdóttir, þjónustu- og samskiptastjóri Ljóssins og Brynjólfur Eyjólfsson formaður stjórnar Ljóssins komu af þessu tilefni til okkar.
Í Kveik í gær var bæði sláandi og afar ítarleg umfjöllun um barnaníðsefni á netinu. Það vakti óhug okkar í Síðdegisútvarpinu þegar þáttastjórnendur bjuggu til gerviaðgang á samskiptamiðlinum Snapchat, sem leit út fyrir að vera í eigu fjórtán ára barns, og að sjá hvernig vinabeiðnum og ógeðfelldum skilaboðum rigndi inn. Snapchat er afar vinsæll samfélagsmiðill hjá ungu kynslóðinni, en átta forráðamenn sig á hættunum sem þar leynast? Skúli Bragi Geirdal sviðsstjóri Netvís kom til okkar og fer yfir þessi mál með okkur.
Við kynntum okkur Málbrú sem er nýsköpunarverkefni í samstarfi Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) og Mennta- og barnamálaráðuneytisins. Hvernig er hægt að tryggja að starfsfólk hjúkrunarheimila fái raunhæf tækifæri til að læra íslensku samhliða vaktavinnu? Málbrú hefur nú verið prófuð á þremur hjúkrunarheimilum með þátttöku ríflega 40 starfsmanna og fyrstu niðurstöður lofa góðu. Til að segja okkur betur frá þessu komu til okkar Rebekka Levin, verkefnastjóri fag- og þróunarmála og Heiða Björk Vignisdóttir, lögfræðingur báðar hjá Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu.
Á laugardag verður í Bíó Paradís haldið upp á tíu ára afmæli hryllingsmyndarinnar Child eater í leikstjórn Erlings Óttars Thoroddsen. Myndin er eins konar ástarbréf til hryllingsmynda níunda og tíunda áratugarins um barnfóstru sem lendir í ógöngum þegar drengur í hennar umsjá hverfur sporlaust og hún rekur slóð hans inn í skóglendi. Erlingur Óttar verður viðstaddur sýninguna og svarar spurningum úr sal að sýningu lokinni. Erlingur leit við.

Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.