
Síðdegisútvarpið
Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
ftakaveður gekk yfir landið í gær. Mikið tjón varð á Siglufirði þar sem vindhviður fóru upp í 55 metra á sekúndu. Allar björgunarsveitir á Tröllaskaga voru ræstar út til að aðstoða á meðan veðrið gekk yfir – enda engin vanþörf á. Ásta Gunna Kristjánsdóttir og maðurinn hennar eiga hús eru búsett í Hafnarfirði en eiga hús á Siglufirði. Þau lentu í því óhappi að þak af iðnaðarhúsi í næstu götu lenti á húsinu þeirra og olli miklu tjóni. Ásta Gunna var á línunni.
Ráðherrar menntamála hafa í árabil lofað úrbótum á stöðu námsgagna hér á landi. Mikil innviðaskuld ríkir í málaflokknum og fjármagnið sem þangað er úthlutað dugar varla fyrir endurprentun. Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra lofaði í sumar að leggja 600 milljóna viðbótarframlag til námsgagnagerðar en í haust kom í ljós að sú upphæð yrði mun lægri, eða 455 milljónir. Þá varð einnig ljóst að námsgagnafrumvarpið, sem hefur þrisvar ratað á þingmálaskrá verður ekki lagt fram. Heiðar Ingi Svansson framkvæmdastjóri Iðnú útgáfu og Íris E. Gísladóttir, formaður stjórnar Þróunarsjóðs námsgagna, voru til viðtals um þetta.
Á sunnudaginn hefst á RÚV önnur þáttarröðin um hana Karen sem er þriggja barna móðir sem stóð frammi fyrir erfiðum ákvörðunum þegar hún kemst að því að eiginmaður hennar hefur verið henni ótrúr. Þannig kynntumst við henni í þáttaröðinni Pabbahelgar. Nýja serían heitir Fleiri pabbahelgar. Nanna Kristín Magnúsdóttir leikur aðalhlutverkið, skrifar handritið, leikstýrir og er aðal framleiðandi. Sem sagt er allt í öllu. Nanna Kristín kom til okkar.
Kvikmyndin Digger, með Tom Cruise í aðalhlutverki, hefur vægast sagt fengið mjög misjafna dóma. Áhorfendur virðast skiptast í tvær fylkingar - annað hvort dýrkar það myndina eða hatar hana. Það virðist bæði eiga við um almenning og virta gagnrýnendur. Magnús Jochum Pálsson gagnrýnandi á Vísi og Benedikt Erlingsson leikstjóri ræddu myndina.
Grindavíkurbær hefur hafið markaðskönnun vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar sýningar- og ferðaþjónustu í knattspyrnuhúsinu Hópinu í Grindavík. Hópið varð fyrir miklum skemmdum í náttúruhamförunum í Grindavík og liggur sprunga í gegnum húsið og eru ummerki jarðhræringanna greinileg. Til skoðunar mun vera að nýta húsið og sérstöðu þess til að skapa nýjan áfangastað þar sem gestir gætu kynnt sér náttúruhamfarirnar og áhrif þeirra á Grindavík í öruggu og skipulögðu umhverfi. Pétur Markan bæjarstjóri Grindavíkur ræddi þessar hugmyndir við okkur.
Erótískar bókmenntir og ástarsögur njóta síaukinna vinsælda. Á samfélagsmiðlinum Tik tok hefur svokallað book-tok eða bóka-tok slegið algjörlega í gegn en þar eru notendur hvattir til að lesa "spæsí bækur" eða æsilegar ástarsögur. Einhverjar hafa svo ratað á hvíta tjaldið eins og þættinir Heated Rivalry sem gerðu allt vitlaust á árinu. Bókakrydd er vefverslun með vandlega völdum enskum og íslenskum ástarsögum. Íris Ísleifsdóttir rekur verslunina. Hún kíkti til okkar og sagði frá búðinni og þessu æði sem ætlar ekki að linna.

Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.