Síðdegisútvarpið

Kynhlutlaust mál, sprengjuhótanir og stafrænt ofbeldi

Í vikunni varð nokkur umræða um tillögu Einars Geirs Þorsteinssonar bæjarfulltrúa Miðflokksins á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar um að bænum yrði mótuð málstefna og notað yrði hefðbundið íslenskt mál. Þar var lögð sérstök áherslu á að bærinn myndi leggja af notkun á kynhlutlausu máli. Á degi íslenskrar tungu sagði Inga Sæland í viðtali við Bítið á Bylgjunni að það væri búið að blanda einhverju kynhlutlausu máli í tungumálið okkar sem hún virtist ekki hrifin af. Eiríkur Rögnvaldsson málfræðingur hefur fjallað um þetta á blogginu sínu og við ræddum við hann um málvenju og þróun tungumálsins.

Almannavarnadeild sendi frá sér bæklinginn Verum viðbúin en á meðal þess sem kemur fram að fólk ætti að eiga til heima hjá sér er þurrmatur og dósamatur. Síðan þá hefur sala á geymsluþolnum matvælum aukist. Björgvin Víkingsson framkvæmdastjóri Bónus kíkti til okkar.

Birgðir af bóluefninu Shingrix, sem veitir vörn við ristli, eru að klárast í landinu. Oddur Steinarsson, varaformaður Læknafélags Íslands, greindi frá þessu í grein á föstudag. Þar gagnrýnir hann það fyrirkomulag sem er við lýði þegar kemur að þessum bólusetningum og bendir á að ríflega 1.400 milljónir vanti inn í fjármögnun heilsugæslumódelsins á höfuðborgarsvæðinu frá árinu 2020. Oddur var á línunni.

Sprengjuhótanir hafa verið að berast alls kyns fyrirtækjum og stofnunum, bæði hér á Íslandi og erlendis. Fréttastofan greindi frá því í dag að íslenska lögreglan væri nú að skoða sprengjuhótanir sem bárust í tölvupósti í morgun. Við ræddum við Grétar Þór Sigurðsson fréttamann um málið.

Ljósaganga UN Women á Íslandi fer fram miðvikudaginn á Alþjóðlegum baráttudegi Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi. Í þetta sinn er áhersla á hatursummæli, stafrænt ofbeldi og áhrifum þess á þolendur. Hjónin Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir munu leiða gönguna ásamt Stellu Samúelsdóttur. Ingileif og María kíktu við.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Síðdegisútvarpið

Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,