
Síðdegisútvarpið
Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Nú þegar þrír áratugir eru liðnir frá því að snjóflóð féll á Flateyri er heimildarmynd í bígerð sem fjallar um þessa örlagaríku nótt árið 1995. Leikstjóri myndarinnar Daníel Bjarnason kom til okkar og Þórunn Guðlaugsdóttir, aðstoðarleikstjóri og meðframleiðandi.
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta mætir Búlgaríu í kvöld í þjóðardeildinni. Með sigri gæti liðið tryggt sér toppsætið í riðlinum. Íþróttafréttamennirnir Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson og Elvar Geir Magnússon ræddu leikinn sem er fram undan hér á eftir.
Þriðja föstudaginn í röð erum við með svokallað nördahorn hér í Síðdegisútvarpinu. Í þetta sinn langar okkur að fræðast um svokallað spunaspil eða hlutverkaspil þar sem þátttakendur setja sig í hlutverk persónu í skálduðum heimi sem byggist gjarnan á ævintýrum eða goðsögum. Þekktasta spunaspilið er vafalaust Dýflissur og drekar eða Dungeons and dragons. Til að ræða þessi mál fengum við til okkar tvo sérfræðinga, þau Þorstein Mar Gunnlaugsson og Unni Helgu sem bæði eru virkir spunaspilarar.
Svo er það gervigreindin. Á fyrirlestri hjá Miðstöð hönnunar og arkitektúrs í vikunni var sjónum beint á höfundarrétti og gervigreind. Í pallborðsumræðum var glímt við spurninguna Hvað verður um réttindi og verðmæti mannlegrar sköpunar í heimi þar sem gervigreind er farin að þræða sig inn með hárfínum þráðum inn í allt okkar daglega líf. Á meðal þeirra sem þar tóku til máls var Rán Tryggvadóttir höfundarréttarsérfræðingur. Hún kíkti til okkar.
En gleymum ekki hvaða dagur er í dag. Föstudagurinn þrettándi en samkvæmt hjátrú er dagurinn óhappadagur. Við ætlum fræddumst um það hvað beri að varast í dag og aðra hjátrú með þjóðfræðingnum Símoni Jóni Jóhannssyni sem leit við.
Undir lok þáttar mættu Ingvar Þór Björnsson og Gísli Marteinn Baldursson til okkar og fara yfir það sem er fram undan í Vikunni og Vikulokunum.

Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.