Síðdegisútvarpið

Óvenjuleg dómsmál, ævintýraheimur Astridar Lindgren og ungur heimsmeistari

Ein af fjölmennustu þingsetningum í sögu Héraðsdóms Reykjavíkur var haldin í morgun í svokölluðu Landsbankamáli. Málið má rekja til þess að tveir menn gátu millifært háar fjárhæðir af reikningum sínum án þess að eiga innistæðu fyrir þeim vegna kerfisvillu. Alls voru 120,3 milljónir króna millifærðar í 218 færslum og í heildina var 71 ákærður. Iðunn Andrésdóttir fréttakona var viðstödd í morgun þegar hinir ákærðu og lögmenn þeirra mættu í héraðsdóm.

Það er von eru góðgerðarsamtök sem styðja við fólk með fíknisjúkndóma og aðstandendur þeirra. Samtökin voru stofnuð árið 2019 og hafa það að markmiði að vinna gegn skömm og fordómum. Í nýlegri stöðuupprfærslu á samfélagsmiðlum samtakanna greinir stjórnarformaðurinn Hlynur Kristinn Rúnarsson frá því að hann þurfi mögulega að leggja samtökin niður vegna fjárskorts. Við heyrðum í Hlyni.

Á sunnudag mun ævintýraheimur Astrid Lindgren lifna við í salnum í Kópavogi. Þá munu þau Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm og Daníel E. Arnarsson syngja lög úr söngleikjum söguheims Astrid Lindgren, ásamt nemendum söngleikjadeildar Dansskóla Birna Björns. Hreindís Ylva kíkti til okkar ásamt söngfugli úr sýningunni.

Kimi Antonelli vann það merkilega afrek um helgina að verða yngsti heimsmeistari í sögu Formúlu 1. Þessi tvítugi Ítali hefur vakið gríðarlega mikla athygli, en það er bara eitt og hálft ár síðan að hann keyrði fyrst í Formúlu 1, þá 18 ára og 203 daga gamall. Við ræddum við kappaksturssérfræðinginn Kristján Einar Kristjánsson um ungstirnið.

Aðalmeðferð í máli gegn Írisi Helgu Jónatansdóttur, meints eltihrellis, hófst í morgun. Málið hefur vakið mikla athygli en Íris er ákærð fyrir umsáturseinelti, ærumeiðandi aðdróttanir, skjalafals, rangar sakargiftir og barnaverndarlagabrot. Ragnar Jón Hrólfsson var í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Hann sagði okkur frá því sem kom fram í dómsal.

angsímon á hundrað ára afmæli. Það þekkja líklega allir þennan heimspekilega björn sem er aðalpersóna í barnabókaröð eftir breska rithöfundinn A.A. Milne en myndirnar af honum eru í höndum E. H. Shepard. Guðmundur Andri Thorsson hefur þýtt sögur um Bangsímon á íslensku. Hann kíkti til okkar.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Síðdegisútvarpið

Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,