Síðdegisútvarpið

Kjarasamningar í hættu, hótanir í garð lögreglu og gervigreind

Hver eru eiginlega heildarlaun ráðherra? Hver er rekstrarkostnaður ráðherrabifreiðar, hver er síma- og netkostnaður ráðherra og er einhver aukakostnaður vegna maka í utanlandsferðum sem ríkið greiðir? Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokksins, vill að þessar upplýsingar verði birtar opinberlega og að þær megi finna á einum stað. Hún kom til okkar.

Kjarasamningar kennara eru í hættu en formaður Kennarasambandsins telur ólíklegt að félagsmenn samþykki breytingar á honum fyrir laugardag, sem er síðasti dagurinn til að virkja forsenduákvæði. Inga Rún Ólafsdóttir, sviðsstjóri kjarasviðs hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og formaður samninganefndar sveitarfélaga , ræddi við okkur.

Tími spurningarmerkjanna er runninn upp. Og hvað þýðir það eiginlega? Jú nú er víst kominn sá tími í Árneshreppi að vegurinn sem liggur þar um er kominn í vetrarþjónustu. Það þýðir að Vegagerðin sinnir ekki reglubundnu eftirliti með veginum og ábyrgðin á upplýsingagjöf um grjóthrun, ástand vegar og færð færist í hendur íbúa og sveitarstjórnar. Héðinn Birnir Ásbjörnsson, á sæti í samgöngunefnd sveitarfélagsins. Hann kom til okkar.

Þrír menn voru í gær dæmdir í sex til átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa kveikt í Teslu sem rannsóknarlögreglukona hafði til umráða. Dómurinn taldi mönnunum öllum hafa verið kunnugt um að um hefnd væri að ræða. Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, var á línunni.

Gervigreindin tröllríður nú öllu og hún er umdeild. Varað er við hættunni af henni, hún sögð munu taka störf af mannfólki í framtíðinni en svo er hún líka nytsamleg til að skrifa og laga texta, búa til myndir og jafnvel að greina stóra sem smáa hluti. En hvernig notum við hana til þess að létta okkur daglega lífið? Stefán Atli Rúnarsson eigandi gervigreindarnamskeid.is kom til að fræða okkur um það.

Núna er að fara af stað menningarhátíð á Akranesi sem ber heitir Vökudagar. Þar sem myndlist, tónlist og bókmenntir mætast. Hátíðin hefur verið haldin ár hvert frá 2002 til að efla mannlífið í bænum og lífga upp á skammdegið. Vera Líndal Guðnadóttir, verkefnastjóri menningarmála hjá Akranesbæ, sagði okkur betur af þessari menningarveislu.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Síðdegisútvarpið

Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,