Síðdegisútvarpið

Trump hafnað, samningslausir starfsmenn og Strætó

Demókratar fagna í dag sigri eftir að hafa tryggt sér meirihluta í bæði fulltrúa- og öldungadeildinni. Sérfræðingar telja að niðurstöðurnar sé höfnun á Trump og Trumpisma. Benedikt Jóhannesson stjórnmálaspekingur ræddi niðurstöður kosninganna við okkur.

Starfsfólk sem sinnir börnum með fjölþættan vanda vinnur oft við afar krefjandi, ófyrirsjáanlegar og hættulegar aðstæður, og eru oft með mikla ábyrgð á herðum sér. En hvernig eru réttindi þeirra tryggð? Og hvernig er bótarétti þess háttað ef það verður fyrir tjóni við störf sín? Að þessu spyrja Jenný Þórunn Stefánsdóttir lögmaður Sameykis og Kári Sigurðsson formaður félagsins í aðsendri grein. Á undanförnum árum hefur rekstrarform úrræða fyrir börn með fjölþættan vanda breyst. Í fimm af þeim sjö úrræðum sem eru í boði er réttarstaða starfsfólks óljós og dæmi eru um fyrirtæki sem neita að gera kjarasamning við Sameyki, þrátt fyrir að fjöldi starfsmanna þeirra sé í félaginu. Við ræddum við Kára formann félagsins.

Óperan 27 er nú í sýningu í Borgarleikhúsinu. Hún segir ástarsögu Gertrude Stein og Alice B. Toklas, og af samfélagi sem var skjól fyrir helstu listamenn tuttugustu aldar. Hjá þeim hittust Picasso, Matisse og Hemingway og innan veggja heimilisins ríkti ástríða, metnaður og vinátta.. Höfundar eru Ricky Ian Gordon og Royce Vavrek en uppsetningin er framleiðsla nýs íslensks óperukompanís sem heitir hinÓperan. Markmið þess er að auka sýnileika hinsegin fólks á óperusviðinu. Bjarni Snæbjörnsson leikstjóri sýningarinnar og Herdís Anna Jónasdóttir sem leikur Alice Toklas kíktu til okkar.

Fjölmargir sem aka til vinnu væru frekar til í að ferðast þangað með öðrum hætti. En hvers vegna nota ekki fleiri Strætó? Leiðakerfið, ferðatími og fleira gera einkabílinn enn að raunhæfasta kostinum fyrir stóran hóp fólks, að því er fram kemur í niðurstöðum rannsóknar Háskóla Íslands og Reykjavíkurborgar, sem Heimildin greindi nýlega frá. Enn aðrir vilja meina að það hafi aldrei verið verra að nota Strætó. Þessu heldur Brynjar Birgisson blaðamaður Mannlífs fram í skoðanapistli. Hann segir strætóbílstjóra hleypa fólki inn og út á rauðum ljósum, aka fram hjá fólki sem séu greinilega að bíða, fara yfir á rauðu ljósi og listinn heldur áfram. Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður Heimildarinnar og Brynjar komu til okkar og ræddu almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu.

Eldra fólki fjölgar hér á landi og á næstu tíu árum er spáð að fjölgun landsmanna, 80 ára og eldri, verði 44 % samanborið við um 18 % í öðrum aldurshópum. Stjórnvöld hafa sett af stað verkefnið "Gott að eldast" en félags- og húsnæðismálaráðherra var til viðtals í Morgunútvarpinu í morgun um verkefnið. Það snýr að því að hvetja fólk til að undirbúa efri árin, huga snemma að því að efla félagsleg tengsl svo sem með áhugamálum, rækta hugann með alls konar áskorunum og stunda reglulega líkamlega hreyfingu. Og hvernig er best að gera þetta fyrir hvern og einn? Janus Guðlaugsson hjá Janusi heilsueflingu fór yfir það með okkur.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Síðdegisútvarpið

Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,