Síðdegisútvarpið

Fangelsismál, jólabókaflóðið, uppistand, gellur og gervigreind og leðurblaka á Íslandi

Er æskilegt að fangar af erlendum uppruna fái afslátt af refsingum hér á landi eða eru aðrar leiðir færar til að vinna á fangelsisvandanum? Dómsmálaráðherra greindi frá því um helgina að 40 brotamönnum hefði verið vísað úr landi frá því að Alþingi samþykkti í sumar frumvarp um breytingar á lögum um fullnustu refsinga. Vakti hún athygli á því að stjórnarandstaðan hefði ekki stutt frumvarpið á sínum tíma, þar á meðal Miðflokkurinn. Sigríður Á. Andersen þingmaður Miðflokksins kom til okkar.

Óboðinn gestur sást á flögri yfir Fellabæ í gær. Þótt að myndskeið sem náðist af þessu fyrirbæri hafi verið smá óskýrt þykir nokkuð öruggt að þarna hafi verið leðurblaka á ferð. Austurfrétt greindi fyrst frá málinu en þar segir að ómögulegt sé að vita hvernig þetta dýr hafi ratað til Íslands. Kolbrún Sverrisdóttir, sérfræðingur hjá Náttúrufræðistofu Austurlands, var á línunni, en það var einmitt hún sem náði myndskeiðinu af blökunni út um eldhúsgluggann sinn.

Fresh Happy Mex er ekki bara einkennisorð skyndibitastaðarins Serrano heldur einni tónlistaruppistands-sýning Kára Viðarssonar sem á og rekur Frystiklefann í Rifi. Sýningin er haldin er á Ölveri um helgina og á dagskrá eru grínlög, mistök, dæmisögur og kenningar og sitthvað sem kemur á óvart. Hann lofar góðri skemmtun og fríum maísflögum fyrir gesti. Kári leit við.

Samband íslenskra myndlistarmanna skorar á ríkið og sveitarfélög að bregðast við bráðum húsnæðisvanda myndlistarmanna og kortleggja þörfina fyrir vinnustofur. Ef stjórnvöld vilja að íslensk myndlist blómstri þurfa þau að tryggja listafólki rými til að vinna, þróast og horfa fram á veginn. Anna Rún Tryggvadóttir formaður sambandsins kom til okkar.

Gervigreind er alls staðar en hvar eru allar gellurnar. Þess spyrja þær Marín Jónsdóttir og Anna Margrét Gunnarsdóttir sem starfa báðar hjá Almannarómi - miðstöð gervigreindar og máltækni. Þær vil sjá fleiri gellur komast inn í gervigreindarheiminn og byrja að nýta sér tæknina fyrir alvöru og að því tilefni standa þær fyrir námskeiði í Íslenska sjávarklasanum á miðvikudagskvöld. Þær komu til okkar.

Nú fyrir jól sendir Bragi Páll Sigurðarson frá sér skáldsöguna Íslensk óhamingja sem fjallar um veröld þar sem eymdin er allsráðandi. Að því tilefni býður skáldið til útgáfufögnuðar á Ameríska barnum á miðvikudag. Þar er fólk hvatt til að mæta í sorgarfatnaði, svörtum jarðarfararklæðnaði og helst með tár á hvarmi. Einnig er mælst til þess að gestir hafi flautu meðferðis. Bragi Páll kíkti til okkar.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Síðdegisútvarpið

Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,