Síðdegisútvarpið

Pókemon, hrekkjavaka, Bíótekið, Púlsinn og gervigreind

Aukið ofbeldi meðal grunnskólabarna er áhyggjuefni að mati formanns Kennarafélags Reykjavíkur. Dæmi eru um kennslustofum sé læst á meðan kennsla fer fram og að einstaklingar og hópar hafi komið inn í skóla og veist að nemendum og starfsfólki. Bráða- og viðbragðsteyminu Púlsinum var komið á fót í vor til að bregðast við þessari þróun. Andrea Marel Þorsteinsdóttir teymisstjóri Púlsins kom til okkar.

Jólaauglýsing frá Prada hefur vakið mikla lukku. Þar má sjá fallegar teiknimyndir, eða hreyfimyndir, sem ekki voru gerðar með gervigreind heldur voru hönnuðir frá Disney fengnir til að gera hreyfimyndirnar á klassíska mátann. Við ræddum við Freymar Þorbergsson hönnuður um gervigreindina og list, og hvernig manngerðir hlutir og hönnun verða hugsanlega dýrmætari í framtíðinni.

Í svokölluðu bíóteki sýnir Kvikmyndasafn íslands í samstarfi við Bíó Paradís valdar kvikmyndaperlur á sunnudögum. Sunnudaginn 1. nóvember á að rifja upp Ungfrúnna góðu og húsið. Þar færir Guðný Halldórsdóttir sögu föður síns Halldórs Laxness á hvíta tjaldið af næmi og krafti og dregur upp áhrifamikla mynd af samfélagi þar sem ásýndin skiptir öllu máli. Guðný Halldórsdóttir leikstjóri kíkti til okkar.

Breskur ellilífeyrisþegi varð milljónamæringur eftir að hafa fundið gamla möppu með pokemon-spilum á háaloftinu heima hjá sér sem hafði legið þar í fimmtán ár. Mörg sjaldgæf spil fundust í möppunni sem voru seld á uppboði. Alls fékk maðurinn 1,6 milljónir punda fyrir safnið, eða um 260 milljónir íslenskra króna. Mér skilst að þetta sé methæð, eða alla vega í Evrópu. Við fengum til okkar Barða Pál Böðvarsson eiganda Pokéhallarinnar til að ræða verðmæt Pokémonspil.

Það er hrekkjavaka á morgun og við fórum á stúfana. Markmiðið var að finna fólkið sem gerir flottustu hrekkjavökuskreytingar landsins og langflestir bentu á leikarahjónin Andreu Ösp Karlsdóttur og Stefán Benedikt Vilhelmsson. Þau kíktu til okkar og sögðu frá undirbúningnum, skrautinu og hátíðarhöldunum.

Að lokum kíktu þeir til okkar Gísli Marteinn Baldursson og Ingvar Þór Björnsson eins og alla föstudaga. Þeir fóru yfir það með okkur sem er framundan í Vikunni og Vikulokunum að þessu sinni.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Síðdegisútvarpið

Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,