Síðdegisútvarpið

Skortur á dýralæknum, moskítóflugur og Tekjublaðið

Erfiðlega hefur gengið manna bakvaktir og stöður dýralækna víða um land. Verst er þó staðan á suðaustur- og austurhorninu þar sem enginn starfandi dýralæknir er á svæði frá Kirkjubæjarklaustri og Breiðdalsvík. Ástandið er slæmt og bitnar á velferð dýra. Við ræddum við Báru Eyfjörð Heimisdóttur, formann Dýralæknafélags Íslands.

Í framhaldi af spjalli okkar við forstjóra Haga, Finn Oddson, á föstudaginn þar sem við ræddum matvöruverð og áætlanir Haga til lækka það hjá sér með því flytja inn nýjar vörur í samstarfi við Salling í Danmörku, þá fengum við til okkar Bjarka Stein Benjamínsson sem er verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ og ræddum við hann um þróun dagvöruvísitölunnar á matvörumarkaði.

Náttúrufræðistofnun hefur í sumar vaktað mögulegar smitferjur, það eru moskítóflugur, mítlar og lúsmý. Eins og frægt er þá fundust moskítóflugur í fyrsta sinn hér á landi í haust og var almenningur í sumar hvattur til tilkynna ef hann yrði var við slíkar flugur í sumar. En hvernig hefur þetta gengið og hafa moskítóflugur eða mítlar fundist? Við hringdum í Matthías Svavar Alfreðsson skordýrafræðing stofnunarinnar og forvitnuðumst um það.

Það er gósentíð hjá áhugafólki um laun og tekjur annarra. Fjölmiðlar keppast við greina frá tekjuhæstu forstjórunum, ráðherrunum og áhrifavöldunum. Við ræddum við Trausta Hafliðason, ritstjóra Viðskiptablaðsins, um Tekjublaðið sem kom út í dag.

Kvenréttindafélag Íslands, Bjarkarhlíð, Kvennaathvarfið, Líf án ofbeldis, Stígamót og Vitund standa fyrir málþingi í kjölfar hlaðvarps þáttaraðarinnar Biskupsmálið eftir Gabríelu Bryndísi Ernudóttur sálfræðing. Í þáttaröðinni var fjallað um vald og ábyrgð: hvernig valdamikill maður og embætti hans nutu verndar á meðan konur sem sögðu frá kynferðisofbeldi þurftu ítrekað verja frásagnir sínar og trúverðugleika. Jafnframt var sýnt hvernig afleiðingar kynferðisofbeldis, þöggunar og viðbragða stofnana geta varað áratugum saman og haft áhrif langt út fyrir líf þeirra sem urðu sjálfar fyrir ofbeldinu. Þær Elín Hirst og Gabríela Bryndís komu til okkar.

Hvað er spennandi á skjánum þessa daganna. Okkar maður í sjónvarpsheiminum er Ragnar Eyþórsson. Hann kom og benti okkur á góðar seríur sem vert er hámhorfa.

Birt

18. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,