PartyZone: Dansþáttur þjóðarinnar

Party Zone 20. september

Við spilum allt það nýjasta í heimi danstónlistarinnar ásamt múmíu kvöldsins sem er einhver klassísk dansperla. Við sem fyrr skoðum það helsta sem er gerast í danssenunni her heima, spilum þ.a.l. nýja íslenska danstónlist segjum frá hvar plötusnúðarnir hreiðra um sig á næstunni. Dj-ar kvöldsins eru Dj tvíeykið Dj Danni Bigroom og Björn Salvador. Þeir koma einmitt fram á Kaffibarnum um helgina. Það búast við þéttum klúbbvænum tónum í settinu þeirra. DJ settið er einnig Nauðsynlega Mixið í PartyZone þennan mánuðinn.

Við minnum á í lengri hlaðvarpsútgáfu þáttarins er settið einmitt tveir tímar.

Frumflutt

20. sept. 2024

Aðgengilegt til

20. sept. 2025
PartyZone:  Dansþáttur þjóðarinnar

PartyZone: Dansþáttur þjóðarinnar

PartyZone - Dansþáttur þjóðarinnar frá 1990 - Við grúskum í og spilum alla heitustu danstónlistina í dag í bland við dansbombur fortíðar í dagskrárliðnum múmía kvölsins.

Sem fyrr eru plötusnúðar þungamiðja þáttarins og munu helstu plötusnúðarnir koma í heimsókn og taka DJ sett. Mánaðarlega kynnum við Topp 30 PartyZone listann valinn af plötusnúðunum. Við segjum fréttir af íslensku danssenunni og gefum íslenskri danstónlist sérstakan sess í þessari endurkomu PZ í línulega dagskrá á Rás 2.

Umsjón: Helgi Már Bjarnason og Kristján Helgi Stefánsson.

Þættir

,