PartyZone: Dansþáttur þjóðarinnar

Party Zone 28. febrúar

Í fyrri hluta þessa þáttar handveljum við allskonar glænýtt stöff úr heimi danstónlistarinnar. Þar á eftir er rennt í þrennu kvöldsins þar sem farið er aftur til dansársins mikla 1995 og spiluð 3 lög af PZ lista sem við kynntum á þessum mögnuðu tímum þegar dansenan var í algerum hápunkti. Múmía kvöldsins er síðan lag sem var í 6.sæti PZ listans í febrúar 2000.

DJ sett kvöldins er upptaka frá Kaffibarnum frá því síðasta laugardag, 22.febrúar, þar sem DJ Símon Fknhndsm stóð vaktina fram á nótt.

PartyZone með puttann á danstónlistinni og plötusnúðasenunni öll föstudagskvöld á Rás 2.

Frumflutt

28. feb. 2025

Aðgengilegt til

28. feb. 2026
PartyZone:  Dansþáttur þjóðarinnar

PartyZone: Dansþáttur þjóðarinnar

PartyZone - Dansþáttur þjóðarinnar frá 1990 - Við grúskum í og spilum alla heitustu danstónlistina í dag í bland við dansbombur fortíðar í dagskrárliðnum múmía kvölsins.

Sem fyrr eru plötusnúðar þungamiðja þáttarins og munu helstu plötusnúðarnir koma í heimsókn og taka DJ sett. Mánaðarlega kynnum við Topp 30 PartyZone listann valinn af plötusnúðunum. Við segjum fréttir af íslensku danssenunni og gefum íslenskri danstónlist sérstakan sess í þessari endurkomu PZ í línulega dagskrá á Rás 2.

Umsjón: Helgi Már Bjarnason og Kristján Helgi Stefánsson.

Þættir

,