PartyZone: Dansþáttur þjóðarinnar

Jóla Party Zone 20. desember

Party Zone þáttur í smá jólasparifötum en samt party þar sem reynt verður vera svolítið á hátíðlegum nótum. Í fyrri hluta þáttarins eru týnd til jólalög sem sóma sér vel í dansþætti þjóðarinnar, allskonar dansskotinn jólalög, "bootlegs" og endurhljoðblandanir. Þrenna kvöldsins geymir lög sem sátu ofarlega á PZ listanum í desember 2003. Tvær múmíur kvöldsins eru síðan síðan 1999 og eru því 25 ára í ár. Við lokum svo þættinum með hátíðlegum og silkimjúkum jólafiðring sem við settum saman fyrir jólin 2007 og hefur ekki verið spilaður í útvarpi áður. PartyZone er Jóla Zone, enda korter í jól.

Frumflutt

20. des. 2024

Aðgengilegt til

20. des. 2025
PartyZone: Dansþáttur þjóðarinnar

PartyZone: Dansþáttur þjóðarinnar

PartyZone - Dansþáttur þjóðarinnar frá 1990 - Við grúskum í og spilum alla heitustu danstónlistina í dag í bland við dansbombur fortíðar.

Umsjón: Helgi Már Bjarnason og Kristján Helgi Stefánsson.

Þættir

,