Bara bækur

Planterhaug, Skepnufólk, Veisla þrjú

Í þættinum hringjum við til Noregs. Bókmenntaverðlaun norðurlandaráðs fóru til Noregs eins og öll hin verðlaunin. Sigbjörn Skåden hlaut bókmenntaverðlaunin fyrir skáldsöguna Planterhaug. Katla Tryggvadóttir bókmenntafræðingur er stödd í Noregi og ræðir við um Planterhaug og Skåden.

Við leggjum svo upp í ferðalag yfir heiðina og hittum tvo rithöfunda á Selfossi. Hörpu Rún Kristjánsdóttur sem var að gefa út sína aðra skáldsögu, Skepnufólk - um lífið í íslensku sveitinni í nútímanum - og Steinunni Sigurðardóttur sem var að gefa út skáldsöguna Veislu þrjú, beint framhald af skáldsögunni Ból.

Viðmælendur: Katla Tryggvadóttir, Harpa Rún Kristjánsdóttir og Steinunn Sigurðardóttir.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Bara bækur

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir. Umsjón: Jóhannes Ólafsson.

Þættir

,