Sumarmorgunn heilsar á mánudegi 14. júlí, þjóðhátíðardegi Frakka, Bastilludeginum. Til hamingju þið öll. Við fylgjum hlustendum ljúflega inn í daginn með viðeigandi mánudagstónlist og áhugaverðu spjalli og komum víða við.
Við höldum áfram flakki okkar um landið og kynnumst öllu því helsta á völdum stöðum í hverjum landshluta. Við fórum í könnunarleiðangur með Karli Hallgrímssyni um uppsveitir Árnessýslu en Kalli er staddur á Flúðum. Við höfum fengið að flakka með góðu fólki fram að þessu, fengum hlaðborð frá Akureyri fyrir viku hjá honum Baldvini Esra, flökkuðum svo um Austfirði í boði Þorbjargar Sandholt og síðasta föstudag húkkuðum við far með Önnsku Arndal um hina heilögu þrenningu Vestfjarða. Það var afar forvitnilegt að kíkja með Kalla Hallgríms á Suðurlandið eða uppsveitir Árness þar sem farið var um víðan völl.
Fyrir fáeinum dögum kynntum við hér inn dagskrárlið í Sumarmorgnum er kallaðist Náttúruspjöll með Kela en þá mætti í hljóðver Þorkell Heiðarsson sem er náttúru- og líffræðingur og ætlar hann að heimsækja þáttinn í sumar og spjalla um náttúruna og dýrin. Keli hefur lengi starfað með dýrum og mönnum í Húsdýragarðinum og er hann formaður félags íslenskra náttúrufræðinga. Þorkell mætti í fyrstu með áhugaverðar sögur af lúsmýi og núna voru það slándi fregnir af mávum, aðallega þó Svartbakinum, Larus marinus, sem þýðir á latínu „hafmáfur“ eða „sjávarmáfur“. Hann virðist í útrýmingarhættu.
Svo var það tónlistin og þar hófst þetta allt með fuglum sem var eitt sinn í útrýmingarhættu en ekki lengur - því tegundin er útdauð.
Geirfuglarnir - Fyrirheitna landið.
Jón Jónsson Tónlistarm., Una Torfadóttir - Vertu hjá mér.
Ágúst Elí Ásgeirsson - Megakjut.
GLASS ANIMALS - Heat Waves.
Young, Neil - Harvest moon.
Kinks - Sunny Afternoon.
KARL HALLGRÍMSSON - Tóm í skóm.
FLEETWOOD MAC - Landslide.
Hrekkjusvín - Sumardagurinn fyrsti.
Noah and the whale - 5 years time (radio edit).
KUSK - Sommar.
NIK KERSHAW - I Won't Let The Sun Go Down On Me.
Miley Cyrus - Flowers.
DannyLux, Black Keys, The - Mi Tormenta.
PETER GABRIEL - Sledgehammer.
Mars, Bruno, Rosé - APT..
Yeah Yeah Yeahs - Cheated hearts.