
Síðdegisútvarpið
Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Goðsagnakennda gamanmyndin Stella í orlofi er orðin fjörtíu ára gömul en hún var frumsýnd í október árið 2026. Nú á sunnudag stendur til að halda upp á þetta stórafmæli í Salnum í Kópavogi þar sem boðið verður upp á brauðtertur, gula mæjonesu, leikstjóri, handritshöfundur og tvær aðalleikonur myndarinnar sitja fyrir svörum auk þess sem Diddú mætir og syngur titillagið. Síðast en ekki síst verður á boðstólnum laxahjarta fyrir Salómon. Edda Björgvinsdóttir sem fer auðvitað með hlutverk Stellu Löve, og Hildur Berglind Arndal sem er einn skipuleggjandi viðburðarins komu til okkar.
Í gær spurðum við hvað má þegar kemur að því að fegra vörur, og þá kannski sérstaklega fasteignir, með hjálp gervigreindar í auglýsingum? Margeir Valur Sigurðsson, lögfræðingur hjá Neytendastofu, svaraði því. Mikið mun vera rætt um notkun gervigreindar í fasteignaauglýsingum í fasteignabransanum og sitt sýnist hverjum. Við fengum fasteignasalann Pál Heiðar Pálsson til að fara yfir þessi mál.
Ás styrktarfélag, sem er almannaheillafélag með þjónustu við fatlað fólk, stendur fyrir jólamarkaði á morgun en þar verða seldar vörur frá Ási vinnustofu, Lækjarási og Gróðurhúsinu. Ása Björk Gísladóttir starfsmaður og Bjarnheiður Magnúsdóttir leiðbeinandi litu við.
Stórtónleikar Kaleo á Þingvöllum í sumar sem gengu undir nafninu Bergmál tókust gríðarlega vel að sögn skipuleggjenda og almenn ánægja var meðal tónleikagesta eftir því sem við komust næst. Og næsta sumar á að endurtaka leikinn, þó ekki á Þingvöllum heldur á Vestfjörðum í ágúst. Ósk Gunnarsdóttir er framkvæmdastjóri Bergmáls á Vestfjörðum 2027. Við fengum hana til okkar.
Árleg bókahátíð hefst á morgun í Hörpu og má þar með segja að jólabókaflóðið sé formlega hafið af fullum krafti. Alls koma um 130 höfundar fram og lesa úr nýútgefnum barnabókum, skáldverkum og ljóðabókum auk þess sem skáldin eru vís með að árita bækur sínar. Á meðal þeirra sem þarna verða eru höfundarnir Hildur Knútsdóttir, sem nýverið sendi frá sér skáldsöguna Irpu og Birna Anna Björnsdóttir með bókina Hótel Héðinsfjörður kíktu við.
Afreksíþróttafólkið Karlotta Ósk Óskarsdóttir og Sigurjón Ernir Sturluson standa fyrir styrktarviðburðinum Skref fyrir lífið til stuðnings Krabbameinsfélaginu í Ultraform um helgina. Karlotta hóf sitt hlaup kl. 8 í morgun en hún ætlar að hlaupa samtals 200 km á hlaupabretti. Á meðan Karlotta hleypur ætlar Sigurjón að taka 50 umferðir af æfingum á hverjum degi, samtals 150 umferðir. Sigurjón Ernir kom til okkar.

Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.