
Síðdegisútvarpið
Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Lög um fyrirkomulag sanngirnisbóta er tímabært. Aftur á móti er ástæða til að gera athugasemdir við ýmis atriði sem finna má í frumvarpsdrögum forsætisráðherra. Þetta kemur fram í umsögn Davíðs Þórs Björgvinssonar, hæstarréttarlögmanns og fyrrverandi dómara við Mannréttindadómstól Evrópu. Hann ræddi málið í Síðdegisútvarpinu.
Í dag er þriðji fimmtudagur nóvembermánaðar sem þýðir bara eitt, Beaujolais-dagurinn er runninn upp! Beaujolais Nouveau er franskt ungvín frá Beaujolais-héraðinu og í dag er hefði fyrir því að taka tappana úr þessum sérstöku vínflöskum og bragða á víninu. Til að segja okkur betur frá þessari skrítnu hefð komu til okkar Heiðrún Mjöll Jóhannesdóttir og Brynhildur Þorbjarnardóttir frá Vínvísum.
Hvað má eiginlega þegar kemur að því að fegra vörur, og þá kannski sérstaklega fasteignir, með hjálp gervigreindar í auglýsingum? Þónokkuð hefur borið á slíkum myndum á fasteignavefsíðum undanfarna mánuði sem vekja upp spurningar um hvað má og hvað má ekki, og hvaða fyrirvara þurfi að gera þegar gervigreindarmyndir eru birtar. Margeir Valur Sigurðsson, lögfræðingur hjá Neytendastofu, kom til okkar.
Ástandið á íslenskum byggingamarkaði hefur aldrei verið jafn slæmt og nú er er lítur að launaþjófnaði, brotum á kjarasamningum og réttindalausum starfsmönnum sem vinna iðnaðarstörf. Ólafur Oddgeir Viðarsson, húsasmíðameistari og eftirlitsfulltrúi í vinnustaðaeftirliti Byggiðnar segir starfsumhverfið hafa gjörbreytast undanfarin 20 ár. Hann segir fyrirtæki sem hann hafi áður unnið fyrir hafi misst verkefni og verkhluta til fyrirtækja sem byggðu samkeppnisstöðu sína á ófaglærðu vinnuafli á lágum launum. Ólafur fór yfir stöðuna með okkur.
Kokkalandslið Íslands er nú á leið til Lúxemborgar til að taka þátt í heimsmeistaramótinu í matreiðslu, Culinary World Cup. Fyrri keppnisdagurinn af tveimur er á núna á laugardaginn. Keppendur, þjálfarar og aðstoðarfólk hefur lagt mikla vinnu í undirbúninginn og eru staðráðin í að gera sitt besta fyrir Íslands hönd. Þórir Erlingsson er forseti Klúbbs matreiðslumeistara og framkvæmdastjóri íslenska landsliðsins. Hann var á línunni.

Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.