
Síðdegisútvarpið
Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Reglubundnar eftirlitsheimsóknir, uppfærðar kröfulýsingar og samstarf þvert á sveitarfélög eru meðal tillagna velferðarsviðs Kópavogsbæjar sem stefnir nú að því að efla eftirlit með aðbúnaði barna í einkareknum búsetu- og vistunarúrræðum sem bærinn kaupir þjónustu af. Hundruðum milljóna er varið í málaflokkinn á ári hverju en eins og fram kom í Kveik í haust eru heimilin stundum þannig að aðstæður eru ófullnægjandi og skortur er á starfsfólki. Björg Baldursdóttir, formaður velferðar- og mannréttindaráðs Kópavogsbæjar, og Sigrún Þórarinsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs bæjarins, komu til okkar.
Fyrir nokkru forvitnuðumst við í Síðdegisútvarpinu um rannsókn sem var að fara af stað þar sem verið var að bjóða fólki peninga. Rannsóknin kallast VAL og markmið hennar er að auka þekkingu á mannlegri hegðun og ákvarðanatöku. Í VAL er unnið að því að skilja betur hvernig fólk tekur ákvarðanir í daglegu lífi og þú getur enn tekið þátt. Til að segja okkur frá rannsókninni og hvernig hægt er að taka þátt kom til okkar Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands.
Aukinn fjöldi greindist með COVID-19 og inflúensu í liðinni viku. Hópsýkingar komu upp á tveimur deildum Landspítala sem skýrir þessa aukningu að hluta. Vísbendingar eru að COVID-19 hafi náð meiri útbreiðslu í samfélaginu. Þessar frétta vekja upp óþægilegar minningar er óhætt að segja. Við heyrðum í Guðrúnu Aspelund sóttvarnalækni.
Í Raunheimakastinu fjalla þær Anna Laufey Stefánsdóttir og Kristín Sævarsdóttir um áhrif skjánotkunar og tækni á börn, ungmenni og fullorðna. Hlaðvarpið er nú tveggja ára gamalt. Þær kíktu til okkar og sögðu okkur nánar frá því sem þær hafa verið að fjalla um þar.
Við héldum áfram að fjalla um gervigreindina og skólastarf því niðurstöður liggja fyrir úr tilraunaverkefni um notkun gervigreindar meðal kennara, sem Miðstöð menntunar og skólaþjónustu kom meðal annars að. Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri MMS, kíkti til okkar og ræddi við okkur um verkefnið. Auk þess fórum við yfir gagnrýni á fyrirkomulag námsgagnaútgáfunnar á Íslandi.
Sveitarstjórn Hrunamannahrepps hefur viðrað áhyggjur sínar af fyrirhuguðum áformum stjórnvalda um innheimtu náttúru- og innviðagjalds við Gullfoss sem fyrirhuguð er í nýju frumvarpi um náttúru- og innviðagjald. Segir sveitastjórnin að nú þegar séu ferðaþjónustuaðilar í auknu mæli farnir að færa skipulagðar ferðir yfir á austurbakka Hvítár við Gullfoss þar sem ekki er áætlað að koma á gjaldtöku. Við heyrðum í Jóni Bjarnarsyni, sem er í sveitarstjórn Hrunamannahrepps, um þessar áhyggjur þeirra.

Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.