Síðdegisútvarpið

Ferðamannaiðnaður, dagur einhleypra, jólatónleikar, Japan og Kærleikslagið

Forsvarsmenn tveggja ferðaþjónustufyrirtækja gagnrýna framgöngu Viðreisnar í skoðanagrein á Vísi í dag og segja traust greinarinnar gagnvart flokknum vera brotið. Viðreisn hafi lofað fyrirsjáanleika fyrir ferðaþjónustuaðila og að ekki sé hægt að bakka með afleiðingar sem ný lög gætu haft í för með sér. Rannveig Snorradóttir framkvæmdastjóri Obeo Travel er önnur þeirra sem vekur máls á þessu. Hún kíkti til okkar.

Fram undan eru stórir tilboðsdagar á borð við dag einhleypra, sem er á morgun, svartan föstudag og stafrænan mánudag. Og svo er það öll jólaverslunin. Þá þarf maður að vera vel vakandi og á varðbergi því netsvikararnir bíða. Ef tilboðið hljómar of gott til að vera satt er það líklega ekki satt. Ingvar Haraldsson, greininga- og samskiptastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu, skrifar ágæta áminningu til okkar af þessu tilefni í aðsendri grein á Vísi. Og vegna þess hve margir virðast festast í neti svikarana er gott að minna á hvernig er best að varast þá. Ingvar kom til okkar.

Skemmtikrafturinn Geir Ólafsson býr í Kólumbíu hluta ársins enda starf eiginkonu hans þar í landi en hún er menntaður markaðs- og efnahagsfræðingur og er frá Kólumbíu. Við fáum Geir til okkar í dag og fáum hann til að segja okkur frá lífinu í Kolumbíu, samstarfinu við bandaríska tónlistamenn þar sem hann finnur sig syngjandi í Las Vegas og Los Angeles. Geir mætir til okkar eldhress.

Kveikur fjallar í kvöld um kynferðisbrot gegn börnum og sérstaklega barnaníðsefni á netinu. Efnið hefur aldrei verið jafn útbreitt og fullorðnir karlmenn eiga greiða leið að börnum í gegnum samfélagsmiðla. Þau Sunna Karen Sigurþórsdóttir og Árni Þór Theodórsson frá Kveik komu til okkar.

Stella Soffía Jóhannesdóttir er nýkomin heim úr vinnuferð til Japans. Hún hélt fyrirlestur fyrir heimamenn um íslenskar og norrænar bókmenntir við norrænudeild Tokai-háskóla, og nemendurnir voru mjög áhugasamir um Ísland og bókmenntirnar. Hún þurfti að fresta ferðinni um ár eftir að hafa lærbrotnað en segir reynsluna hafa verið biðarinnar virði. Stella leit við með ferðasögu.

Eins og annan hvern þriðjudag kom sjónvarpsframleiðandinn Ragnar Eyþórs til okkar og mælir með sjónvarpefni sem hentar vel í hámhorfið.

Dagur eineltis var þann 8. nóvember sl og í tilefni hans langaði tónlistarkonunni Gísellu Hannesdóttur að nota listina til að bregðast við einmanaleika, hatursorðræðu og vanlíðan meðal ungs fólks með því að bregðast við með beinum og kröftugum aðgerðum. Af því tilefni gaf hún út lag, sem hún kallar Kærleikslagið. Aukinn einmanaleiki, hatursorðræða og vanlíðan meðal ungs fólks er á allra vörum en lítið verið að bregðast við með beinum og kröftugum aðgerðum. Gísella kom og sagði okkur frá.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Síðdegisútvarpið

Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,