
Síðdegisútvarpið
Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Á morgun, laugardaginn 24. október, er Kvennafrídagurinn. Þá verða 51 ár liðið frá því að um 90% kvenna á Íslandi lögðu niður störf til að sýna fram á mikilvægi kvenna á vinnumarkaði og til að krefjast sömu réttinda og launakjara og karlar. Í dag ríkir enn mikill munur á atvinnutekjum kvenna og karla, og kynbundið ofbeldi er langt frá því að heyra sögunni til. Drífa Snædal, talskona Stígamóta og fyrrverandi forseti ASÍ, kom til okkar.
Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar, vill að sala lausasölulyfja verði almennt heimil utan apóteka. Hann hefur lagt fram frumvarp þess efnis og spyr hvort nauðsynlegt sé að viðhalda víðtækri takmörkun gagnvart öllum lausasölulyfjum eða hvort mögulegt sé að ná markmiðum um öryggi og neytendavernd með vægari úrræðum. Við ræddum við hann um þessar hugmyndir.
Að nota húmor á meðvitaðan og markvissan hátt til að bæta samskipti, styrkja tengsl og leysa úr spennu eða ágreiningi er eitthvað sem Sveinn Waage þekkir vel enda með námskeiðið Hagnýtur húmor hjá Endurmenntun Háskóla Ísland. Þurfum við ekki öll endurmenntun þegar kemur að húmor? Sveinn Waage svaraði því.
Samband ungra Sjálfstæðismanna hefur endurvakið tímaritið Stefni. Nýtt tölublað var borið út í vikunni og má þar finna viðtöl við fjölda fólks. Júlíus Viggó Ólafsson, formaður sambandsins, kemur og segir okkur frá hvers vegna ákveðið var að gefa út nýtt blað.
Hvenær má byrja að spila jólalög í útvarpi og er siðlaust að skreyta í október? Það eru skiptar skoðanir á þessu. Nú eru sumar verslanir farnar að selja alls kyns jólavarning og Léttbylgjan búin að skipta um gír - og hvað finnst landanum um það? Hólmfríður kíkti aðeins út og kynnti sér álit dómstóls götunnar, sem var að þessu sinni staddur í Kringlunni.
Færeyski snillingurinn Eivör spilar í Eldborg í kvöld og verður gestur í Rokklandi Ólafs Páls Gunnarsson hér á Rás 2 á sunnudaginn. Óli Palli sendi okkur brot úr spjalli sínu við Eivöru sem við fengum að spila.

Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.