Skrítin og skemmtileg lýsingarorð
Lýsingarorð lýsa eiginleikum hluta, vera og hugmynda og standa oft sem ákvæðisorð með nafnorðum. Því mætti ætla að þau væru almennt gagnsæ en það eru þau alls ekki alltaf.
Gríska er án efa það tungumál sem er einna gjöfulast á orðaforða sinn. Orð af grískum uppruna eru hluti af orðaforða fjölmargra tungumála. Þau eru notuð í vísindum og fræðum, menningu og listum um allan heim og fjöldi þeirra sem hafa orðið að alþjóðlegum hugtökum er ómælanlegur.
Orð af grískum uppruna hafa jafnvel ratað í íslensku, sjaldnast þó beint heldur oftast eftir ýmsum krókaleiðum og í daglegu máli er fjöldi orða sem eru komin úr grísku.

Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir