Daglegt mál 23 Baldur Jónsson og Lög unga fólksins
Í bréfi til stjórnanda Daglegs máls árið 1968 veltir bréfritari fyrir sér orðunum táningur og Karnabær. Hann hefur líka talsverðar áhyggjur af málfari unga fólksins eins og það birtist í þættinum Lögum unga fólksins. Baldur Jónsson hafði umsjón með Daglegu máli og útskýrði þar orðið táningur og segir í örstuttu máli frá Karnabæ en deilir ekki áhyggjum af málfari unglinganna.
Í Orði af orði er kafað dýpra í orðin táningur og Karnabær en Baldur hafði tækifæri til, orðfærið á kveðjum unga fólksins skoðað nánar og rifjuð upp ummæli nokkurra þeirra sem stjórnuðu Lögum unga fólksins um málið sem unglingarnir notuðu og ritstýringu Ríkisútvarpsins á þeim.
Birt
14. júní 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Orð af orði
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir