Lötrað, labbað, strunsað og strikað
Um algengar athafnir eru oft til mörg orð sem kalla má samheiti en lýsa athöfnunum nánar vegna fjölbreyttra blæbrigða í merkingu. Sagnirnar ganga og tala lýsa einna algengustu athöfnum…
Við lærum strax í grunnskóla að nafnorð hafa fast kyn. Það þýðir að hvert nafnorð er bara til í einu málfræðikyni, kvenkyni, karlkyni eða hvorugkyni. Það er alla vega almenna reglan, en eins og með allar góðar málfræðireglur þá eru á henni undantekningar. Skoðuð eru nafnorð sem eru notuð í fleiri en einu málfræðikyni, til dæmis skurn, sem er til í öllum þremur kynjunum.

Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir