
Kúrs
Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga. Leiðbeinendur: Þorgerður E. Sigurðardóttir og Anna Marsibil Clausen.
Í þessum þætti verður fjallað um Solihull-aðferðina; aðferð sem hefur á undanförnum árum vakið mikla athygli fyrir áherslu sína á tengsl, samskipti og tilfinningaþroska barna. Aðferðin byggir á þeirri hugmynd að hegðun barna sé oft leið til að tjá þarfir og tilfinningar sem þau geta ekki enn sett í orð. Með því að skilja betur hvað liggur að baki hegðunar geta foreldrar og fagfólk brugðist við af meiri næmni, skilningi og samkennd. Skoðað verður hvernig Solihull-nálgunin getur stutt fjölskyldur, styrkt tengsl og lagt grunn að betri geðheilsu barna til framtíðar.
Umsjón: Magdalena Gísladóttir

Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga. Leiðbeinendur: Þorgerður E. Sigurðardóttir og Anna Marsibil Clausen.