18:00
Kvöldfréttir útvarps
Ekki smitaðir af berklum og Grænland áfram áberandi

Fréttir

Fréttir

Utanríkismálastjóri Evrópusambandsins segir að þó að spennan í málefnum Grænlands hafi minnkað undanfarnar vikur sé enn óvissa. Hún ítrekaði stuðning sambandsins við sjálfsstjórnarrétt Grænlands.

Öryggis- og varnarstefna Íslands var samþykkt einróma á þingi í dag. Meginstoðir í öryggi landsins verða, sem fyrr, aðild Íslands að NATO og varnarsamningurinn við Bandaríkin.

Nokkrir starfsmenn Landspítalans voru útsettir fyrir berklum en enginn hefur greinst með staðfest smit. Starfsemi spítalans er óbreytt.

Rússneskir ráðamenn vara Finna við því að gera lítið úr sambandi ríkjanna. Sérfræðingar telja Rússa leggja grunn að réttlætingu fyrir átökum gegn NATÓ.

Sigga Beinteins er bæjarlistamaður Kópavogs í ár. Hún segir forréttindi að fá að starfa við það sem hún elskar og ætlar að reyna að vera jafn lengi á sviðinu og Raggi Bjarna.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 10 mín.
,