Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Flestir foreldarar kannast við þá klemmu að vera leiðinlega foreldrið sem bannar það sem allir aðrir leyfa, sem setur mörk og gerir kröfur. Um leið og börn byrja að skilja tungumálið grípum við gjarnan í orð eins og nei eða ekki í uppeldinu og eflaust spyrja margir foreldrar sig að því hvort þeir séu ósanngjarnir og hreinlega leiðinlegir við börn sín. Ársæll Már Arnarsson prófessor við Menntvaísindasvið Háskóla Íslands kennir fólki mörk og aga byggðan á kærleika á námskeiði sem ætlað er foreldrum og aðstandendum barna og unglinga og hann kom til okkar og við ræddum listina að vera leiðinlegt foreldri.
Heated Rivalry æði skekur íslenskar húsmæður og í raun heimsbyggðina alla en Heated Rivalry er kanadísk bóka og sjónvarpssería um tvo hokkíspilara Shane Hollander Ilya Rozanv sem eru erkifjendur á skautasvellinu en elskendur í svefnherberginu. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir fréttakona hefur kafað í þættina og vinsældir þeirra og hún mætti til okkar í Morgunútvarpið.
Á næstu vikum munu landsmenn fá sendan heim til sín 24 síðna bækling með leiðbeiningum sem miða að því að auka áfallaþol þjóðarinnar. Runólfur Þórhallsson sviðsstjóri almannavarnasviðs ríkislögreglustjóra hélt erindi á málstofu Varðbergs í síðustu viku þar sem hann greindi frá þessu en erindið fjallaði um áfallaþol Íslands í nýrri heimsmynd. Runólfur kom til okkar og við spurðum hann útí hugtakið áfallaþol og bæklinginn sem við eigum von á öðru hvoru megin við mánaðarmótin.
Við tókum fyrir klámvanda miðaldra fjölskyldufólks í Morgunútvarpinu í dag. Aðgengi að klámi hefur aukist gríðarlega undanfarin ár og það er ekkert rosalega langt síðan byrjað var að bjóða upp á sérstakar meðferðir við klámvanda eða klámfíkn. Klámvanda væri hægt að skilgreina sem þrálátt mynstur stjórnlausrar, ákafrar og ítrekaðrar notkunar á klámi þrátt fyrir umtalsvera vanlíðan og hamlandi áhrif á margvíslega þætti dagslegs einsog truflanir á samböndum og vinnu. Egill Gylfason dáleiðari með BS í sálfræði er einn þeirra sem boðið hefur upp á meðferð við klámvanda en hann kom til okkar í Morgunútvarpið.
