12:42
Þetta helst
Vopn gegn vöxtum eða stalínísk forræðishyggja?

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Það vakti talsverða athygli og umræður í gær þegar Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, nefndi að fyrsta skref að afnámi verðtryggingar yrði stigið um næstu áramót. Minnka á vægi verðtryggðra íbúðalána, meðal annars með nýjum reglum um lágmarkshraða afborgana.

Már Wolfgang Mixa, dósent í viðskiptafræði, gagnrýnir þessa nálgun harðlega og líkir við stalíníska aðferðafræði. Monika Hjálmtýsdóttir, formaður Félags fasteignasala, ræðir þessi mál einnig í þætti dagsins.

Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 15 mín.
,