16:05
Víðsjá
Gyrðir í Glerhúsinu, Hanna Dís í Hakk og Þegar ég sé þig/rýni

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Það kom ýmsum á óvart þegar Gyrðir Elíasson tók sig til og opnaði myndlistarsýningu í Garði á Reykjanesi fyrir tæpum tveimur árum og sýndi þar hvorki meira né minna en 1200 myndverk. Gyrðir segir Reykjanesið hafa kynnt undir myndlistarmanninum í sér, þótt hann hafi raunar lengi í sér blundað. Nýverið opnaði hann aðra einkasýningu sína, sem hann nefnir Í morgunbirtu, í Glerhúsinu við Vesturgötu og þangað höldum við í þætti dagsins.

Trausti Ólafsson leikhúsrýnir verður einnig með okkur í dag, að þessu sinni rýnir hann í leikverkið Þegar ég sé þig, sé ég mig, nýtt íslenskt samsköpunarverk sem frumsýnt var í Borgarleikhúsinu um liðna helgi. En við hefjum þáttinn á því að lita inn í Gallerý Hakk við Óðinsgötu 1 þar sem hönnuðurinn Hanna Dís Whitehead opnaði nýja sýningu í síðustu viku. Þar sýnir Hanna Dís ólíka muni sem dansa á mörkum hönnunar og myndlistar en sem eiga það sameiginlegt að nýta strá sem efnivið.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
,