12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 3. febrúar 2026

Útvarpsfréttir.

Lögreglan á Suðurlandi hefur farið fram á gæsluvarðhald yfir tveimur konum sem handteknar voru í gær vegna andláts í Vestmannaeyjum.

Marius Høiby, sonur norsku krónprinsessunnar, neitar sök í flestum ákæruliðum. Réttarhöld yfir honum hófust í morgun.

Menn sem voru vistaðir af barnaverndarnefndum á sveitabæ segjast hafa orðið fyrir miklu ofbeldi og kerfið hafi brugðist þeim.

Fimm hafa haft samband við Reykjavíkurborg vegna vægra einkenna eftir að listería greindist í framleiðslueldhúsinu á Vitatorgi. Listeríusmit hefur þó ekki verið staðfest.

Ríkisstjórn Frakklands stóð af sér tvær tillögur um vantraust í gær. Þær voru lagðar fram eftir að forsætisráðherrann ákvað að knýja fjárlög í gegnum þingið án atkvæðagreiðslu.

Rútubílstjóri á Egilsstöðum harðneitar að borga næstum tuttugu milljónir í kílómetragjald í janúar. Útilokað sé að rútan komist 25 hringi í kringum jörðina, það er tæplega milljón kílómetra, á einum mánuði.

Verð fyrir að senda pakka til útlanda meira en tvöfaldast um næstu mánaðamót þegar ný verðskrá Póstsins tekur gildi.

Fram varð í gærkvöld fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum bikarkeppni kvenna í handbolta með sigri á ÍR.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,