19:00
Tónleikur
Carl Nielsen

Tónleikur er þáttur um tónlistarstefnur og tónlistarfræði, tónlistarmenn, tónskáld og tónlistarflytjendur.

Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir

Áður á dagskrá veturinn 2008-2009

Carl Nielsen hinn danski er tónskáld þáttarins í dag. Hann samdi fjóra strengjakvartetta og eina litla svítu fyrir strengjasveit sem er op. 1, fyrsta verk hans sem var gefið út og fyrsta verkið hans sem heyrðist opinberlega. Það var í september árið 1888, í Tívolí-konsertsalnum og enginn þekkti þetta unga tónskáld. Carl Nielsen var aðeins 23 ára þegar þetta var, fæddur árið 1865, en fullur sjálfstrausts og verkið raunar mjög glæsilegt miðað við aldur og menntunarskort. Í þættinum verður þessi litla svíta op.1 leikin, í útsetningu fyrir strengjakvartett og síðasti strengjakvartettinn sem Carl Nielsen samdi, árið 1906; og endurskoðaði árið 1919.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 48 mín.
e
Endurflutt.
,