22:03
PartyZone: Dansþáttur þjóðarinnar
Party Zone 6. júní
PartyZone:  Dansþáttur þjóðarinnar

PartyZone - Dansþáttur þjóðarinnar frá 1990 - Við grúskum í og spilum alla heitustu danstónlistina í dag í bland við dansbombur fortíðar í dagskrárliðnum múmía kvölsins.

Sem fyrr eru plötusnúðar þungamiðja þáttarins og munu helstu plötusnúðarnir koma í heimsókn og taka DJ sett. Mánaðarlega kynnum við Topp 30 PartyZone listann valinn af plötusnúðunum. Við segjum fréttir af íslensku danssenunni og gefum íslenskri danstónlist sérstakan sess í þessari endurkomu PZ í línulega dagskrá á Rás 2.

Umsjón: Helgi Már Bjarnason og Kristján Helgi Stefánsson.

Party Zone Sumarþáttur - Þemað er einfalt, sumarklassikerar úr Party Zone frá upphafi til dagsins í dag.

Þáttastjórnendur velja hvern sumarslagarann á fætur öðrum frá tímabili sem spannar 1991 til dagsins í dag. Þrenna kvöldsins eru ný lög sem eru kandidatar í að verða sumarlög ársins í ár.

DJ Mix kvöldsins er síðan mix sem var sett á geisladisk sumarið 2003 og dreift til gesta á ótal kvöldum t.d. á Vegamótum og Kaffibarnum það sumar og var það enginn annar en DJ Tommi sem setti hann saman á sínum tíma.

Er aðgengilegt til 06. júní 2026.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,