15:03
Sögur af landi: Endurlit
1. þáttur
Sögur af landi: Endurlit

Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur að segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.

Í fyrri hluta þáttarins er fjallað um nám í heimabyggð. Rætt er við forstöðumann kennslumiðstöðvar Háskólans á Akureyri, farið í heimsókn í Háskólasetur Vestfjarða á Ísafirði, rætt við nemendur sem stunda dreifnám á Blönduósi og íbúa á heimavistinni á Akureyri. Í síðari hluta þáttarins er fjallað um hreindýraveiðar. Þátturinn var framleiddur árið 2015.

Umsjón:

Þórgunnur Oddsdóttir

Innslög:

Freyja Dögg Frímannsdóttir

Halla Ólafsdóttir

Dagur Gunnarsson

Viðmælendur:

Ásdís Ýr Arnardóttir

Margrét Rún Auðunsdóttir

Magnea Rut Gunnarsdóttir

Peter Weiss

Ástríður Jakobsdóttir

Árni Bæring Halldórsson

Jórunn Rögnvaldsdóttir

Auðbjörg Björnsdóttir

Dúi J. Landmark

Jón Hávarður Jónsson

Axel Gissurarson

Hjálmar Ævarsson

Uggi Ævarsson

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 49 mín.
,