18:00
Kvöldfréttir útvarps
Veiðiráðgjöf Hafró þungt högg
Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Fréttir

Veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um þorsk er vonbrigði, segir forstjóri Síldarvinnslunnar. Atvinnuvegaráðherra segir ekkert annað koma til greina en að fara að ráðleggingunum. Veiðiráðgjöfin hafi ekki áhrif á frumvörp um veiðigjald og strandveiðar.

Óvissa er um framhald þingstarfa og þingfundur fer fram á morgun. Ekkert samkomulag er um hvenær þinglok verða.

Formaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis upplýsti aðstoðarmenn forsætisráðherra um það á föstudag í síðustu viku að líklega fengi kólumbískur drengur íslenskan ríkisborgararétt og að hann hygðist upplýsa Útlendingastofnun um það.

Trump Bandaríkjaforseti og Elon Musk eru enn ósáttir hvor við annan. Vinasamband þeirra raknaði upp í gær fyrir allra augum, með hatrömmum skeytasendingum á víxl.

Lyf sem skerða getu fólks til að aka bíl eru ekki alltaf merkt með rauðum varúðarþríhyrningi. Banaslys í umferðinni í fyrra er meðal annars rakið til þess að ökumaðurinn tók slævandi lyf sem var ekki merkt þríhyrningnum

Er aðgengilegt til 06. júní 2026.
Lengd: 10 mín.
,