Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Sigurður Þorri Gunnarsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í eftirmiðdaginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Við byrjum á veðrinu sem hefur ekki beint leikið við okkur síðustu daga. Er haustið komið eða kemur sumarið aftur? Siggi Stormur var á línunni hjá okkur.
Athafnamaðurinn Elon Musk var þar til nýlega einn af dyggustu bandamönnum Trumps Bandaríkjaforseta. Hatrammar deilur ríkja nú milli þeirra og fjölmiðlar vestanhafs herma að ráðgjafar forsetans reyni að lægja öldurnar. Við köfuðum í málið með Friðjóni Friðjónssyni borgarfulltrúa hjá Reykjavíkurborg.
Dóttir íslensks manns sem var meðal 123 sem fórust þegar norska olíborpallinum Alexander Kielland hvolfdi yfir utan strendur Noregas árið 1980 fékk þær fregnir í gær að loksins fengju aðstendendur hinna látnu miska sinn bættan. Guðný Hansen missti föður sinn aðeins tíu ára gömul í slysi sem að hennar sögn hefði ekki þurft að gerast. En hvað gerðist eiginlega á borpallinum þennan örlagaríka dag. Vera Illugadóttir umsjónarmaður í Ljósi sögunnar kom til okkar en hún hefur gert þátt um málið.
The Icelandic Tattoo convention fer fram nú um helgina. Við hér í Síðdegisútvarpinu fáum ekki nóg af því að fræðast um þessa árlegu hátíð. Össur Hafþórsson skipuleggjandi hátíðarinnar mætiti til okkar, tattúveraður frá toppi til táar og ræddi við okkur um húðflúr og hátíðina sjálfa.
Myndin GOTH í RVK verður sýnd hér á RÚV á annan í hvítasunnu en hún var forsýnd í Bíó Paradís í gærkvöldi. Um hvað fjallar myndin og hverju eiga áhorfendur RÚV von á, á mánudaginn kemur. Árni Sveins leikstjóri og framleiðandi kom til okkar.
Hengill Ultra maraþonið fer fram um helgina og eftri nokkrar mínútur leggja fyrstu hlaupararnir af stað úr Hveragerði, en þeir ætla sér að hlaupa hvorki meira né minna en 106 kílómetra. Einar Bárðarson skipuleggjandi hlaupsins var á línunni.