• 00:00:48Íslenskuátak stjórnvalda
  • 00:10:40Bjartsýn en raunsæ um árangur af COP 28
  • 00:17:47Bjartsýn en raunsæ um árangur af COP 28

Kastljós

Efling íslenskunnar, loftslagsmál og atvinnulífið

Áætlað er minnsta kosti 1,4 millj­örðum verði varið í áætl­un stjórn­valda til efla ís­lenskr­a tungu. Meðal annars er gert ráð fyrir auknar kröfur verði gerðar til innflytjenda til læra íslensku, auk þess sem þeir fái fleiri hvata og aukið svigrúm á vinnutíma til fara á íslenskunámskeið. Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra var gestur Kastljóss.

Tuttugasta og áttunda loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna, COP 28, hefst í Sameinuðu arabísku furstadæmunum á morgun. Auk hinnar opinberu íslensku samninganefndar mæta tugir Íslendinga til viðbótar á ráðstefnuna. Þeirra á meðal eru fulltrúar íslenskra fyrirtækja á sviði orkumála og loftslagslausna og ungra umhverfissinna. Kastljós ræddi við Nótt Thorberg hjá Grænvangi, sem fer fyrir íslensku viðskiptasendinefndinni, og Finn Ricart Andrason, formann Ungra umhverfissinna. Í framhaldinu kom Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífisins og ræddi hvað íslenskt atvinnulíf hefur fram færa í málaflokknum.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Frumsýnt

29. nóv. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Kastljós

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,