Þú veist betur

Sjórinn - 2. hluti: Breytingar og framtíðin

Hafið er hlýna og súrna en hvernig vitum við hvað er eðlilegur breytileiki og hvað er afleiðing okkar eigin losunar? Í seinni hluta samtals míns við Steingrím Jónsson, sérfræðing hjá Hafrannsóknastofnun, skoðum við þessar tvær breytingar í hafinu og hvers vegna þær eru ekki það sama, þó þær eigi sér sömu rót. Steingrímur rifjar upp síldarbrestinn 1965 og hvernig erfitt getur verið greina slíkan náttúrulegan breytileika frá hnattrænni hlýnun af manna völdum. Við förum yfir sérstöðu Íslands í djúpsjávarmyndun heimshafanna, hvað gerðist þegar fyrsta haffræðiferðin var farin árið 1872, og hversu lítill hluti hafsins hefur í raun verið rannsakaður. Í lokin veltum við fyrir okkur hvort Íslendingar séu forgangsraða hafrannsóknum í samræmi við það hversu mikið þjóðin á undir auðugu lífríki sjávar.

Umsjón: Atli Már Steinarsson

Viðmælandi: Steingrímur Jónsson

Birt

4. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Þú veist betur

Í Þú veist betur eru engin umræðuefni of lítil eða of stór. Í meira en 100 þáttum höfum við skoðað allt frá skammtafræði, eldgosum og kjarnorku yfir í ketti, bjór, laxeldi, talmeinafræði, hunda, lungun og landnám Íslands. Og svona mætti lengi telja.

Þættir á mannamáli fyrir forvitna sem vilja skilja heiminn betur, hvort sem það snýst um vísindi, samfélag, líkamann eða söguna.

Umsjón: Atli Már Steinarsson.

Þættir

,