Þú veist betur

Sjórinn - 1. hluti: Hvernig hafið virkar

Sjórinn þekur 71% af yfirborði jarðar, er meðaltali 4000 metra djúpur, og við skiljum hann verr en yfirborð Mars. Getur þetta verið?

Í næstu tveim þáttum ég til mín Steingrím Jónsson, sérfræðing hjá Hafrannsóknastofnun og prófessor við Háskólann á Akureyri, til fara yfir grunneðlisfræði þessa risastóra og dularfulla fyrirbæris: hvaðan vatnið kom upphaflega, hvers vegna sjórinn er saltur, og hvernig þrýstingurinn á botninum er svo gríðarlegur mælitæki þurfa þola hann sérstaklega. Steingrímur fer með mig í gegnum hafstraumana, hvað drífur Golfstrauminn, hvernig jarðsnúningurinn sveigir hann, og hvers vegna djúpsjávarmyndun við Íslandsstrendur er einstök á heimsvísu. Við endum á því hvernig orka og næringarefni flæða um þetta risastóra kerfi, og hvers vegna stór hluti hafsbotnsins er einfaldlega flatur eyðimörk.

Umsjón: Atli Már Steinarsson

Viðmælandi: Steingrímur Jónsson

Birt

4. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Þú veist betur

Í Þú veist betur eru engin umræðuefni of lítil eða of stór. Í meira en 100 þáttum höfum við skoðað allt frá skammtafræði, eldgosum og kjarnorku yfir í ketti, bjór, laxeldi, talmeinafræði, hunda, lungun og landnám Íslands. Og svona mætti lengi telja.

Þættir á mannamáli fyrir forvitna sem vilja skilja heiminn betur, hvort sem það snýst um vísindi, samfélag, líkamann eða söguna.

Umsjón: Atli Már Steinarsson.

Þættir

,