Síðdegisútvarpið

Leyft öllum aldurshópum

Kársnessmálið, Kveikur, knattspyrna, einkunnir og áfengissala

Kveikur snýr loks aftur eftir sumarfrí. Fyrsti þátturinn byrjar í kvöld klukkan kortér yfir átta og fjallar um mikla notkun sterkra geðlyfja á hjúkrunarheimilum á Íslandi. Við ræddum við Ragnhildi Þrastardóttur ritstjóra Kveiks og annan umsjónarmann þáttarins í kvöld um efnistökin og veturinn fram undan.

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu mætir Luxemborg ytra í kvöld en þeir hófu þessa landsleikjahrinu með jafntefli á móti Eistum á laugardaginn hér heima og eiga einnig tvær viðureignir í viðbót í þessari umferð í Þjóðadeildinni. Miklar óánægjuraddir urðu eftir jafnteflið á laugardaginn og efasemdir um verklag þjálfarans. Við fengum Almar Ormarsson íþróttafréttamann til þessa að ræða kröfurnar sem við þjóðin höfum til íslenska karlalandsliðsins.

Karlmaður sem er ákærður fyrir að hafa orðið félaga sínum að bana í heimahúsi á Kársnesi í nóvember á síðasta ári neitaði sök við upphaf aðalmeðferðar í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Hann gaf skýrslu fyrir dómi í morgun en eftir hádegi var rætt við systur hins látna, móður hans og kærustu. Þorgerður Anna Gunnarsdóttir fréttakona var í Héraðsdómi Reykjaness ok kom þaðan til okkar.

Markmið þess að skipta út einkunnakvarðanum er göfugt, að gera einkunnir skiljanlegri fyrir foreldra og forráðamenn. En mun sú útfærsla sem lögð er til uppfylla það markmið? Þessi veltir Þorsteinn Mar Gunnlaugsson grunnskólakennari fyrir sér í aðsendri grein á Vísi. Við ræddum við Þorstein Mar betur um þetta mál í þættinum.

Þingmenn úr Viðreisn, Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum hafa lagt fram frumvarp sem felur í sér heimild til að reka innlenda vefverslun með áfengi. Flutningsmenn frumvarpsins virðast ósammála um hve líklegt það sé að frumvarpið nái fram að ganga. Pawel Bartoszek þingmaður Viðreisnar er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins og hann mætti til okkar.

Annan hvern þriðjudag fáum við Ragnar Eyþórsson, sjónvarpsframleiðanda, til okkar til að benda okkur á gott sjónvarpsefni sem við værum annars hugsanlega að missa af. Ragnar kíkti til okkar undir lok þáttar og við fórum yfir hvað haustbyrjunin býður okkur upp á.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,