• 00:27:07Málefni barna - Salvör Nordal
  • 00:50:00Reykjavíkurflugvöllur - Matthías Sveinbjörnsson
  • 01:10:39Róhingjar - Vera Illugadóttir

Morgunvaktin

Getum ekki sagst vera barnvænt samfélag

Við ræddum um málefni barna við Salvöru Nordal, umboðsmann barna. Hún segir ekki búið þannig að börnum að við getum sagt að á Íslandi sé barnvænt samfélag. Þó að flestum börnum gangi sem betur fer vel þá er ekki hugað nógu vel að þeim sem þurfa aðstoð. Það á við þegar kemur að biðlistum og í alls konar þjónustu.

Matthías Sveinbjörnsson, formaður Flugmálafélags Íslands, kom á Morgunvaktina og ræddi afstöðu sína til málefna Reykjavíkurflugvallar. Hann segist vilja sátt um starfsemi á flugvellinum en er hræddur um að niðurstaðan verði að enginn verði ánægður.

Vera Illugadóttir sagði okkur frá Róhingjum. Í síðustu viku felldi Mannréttindadómstóllinn í Haag, tímamótadóm. Mjanmar var sakfellt fyrir þjóðarmorð. Aldrei fyrr hefur þjóðríki verið dæmt fyrir slíkan glæp. Her Mjanmar drap um tíu þúsund Róhingja árið 2017.

Tónlist:

Patsy Cline - I fall to pieces.

Patsy Cline - Then you'll know.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,