
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Bogi Ágústsson að fó yfir nokkur mál, til dæmis friðarviðræðurnar í Abu Dhabi, þeim lauk í gær. Við ræddum líka stöðu mála í Bandaríkjunum eftir þingkosningarnar þar í síðustu viku, stjórnarkreppuna í Svíþjóð - já og hvernig gengur að mynda stjórn í Ísrael.
Í september rákumst við á auglýsingu þar sem Háskóli Íslands leitaði að fólki sem vildi taka við peningum, sem hluta af nýrri rannsókn. Tinna Laufey Ásgeirsdóttir prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands kom til okkar þá og aftur í dag, til að segja frá aðalrannsókninni sem farin er af stað.
Svo skoðuðum við nýja mannfjöldaspá Hagstofunnar. Samkvæmt henni verða íbúar landsins 500 þúsund árið 2051. Það er reyndar ekki gott að spá fyrir um mannfjöldaþróun - margt getur breyst - þannig kann að fara að það ár verðum við 420 þúsund, nú eða 590 þúsund. Við fórum yfir þetta með Antoni Erni Karlssyni hjá Hagstofunni.
Tónlist:
Þórhallur Sigurðsson - Jón spæjó.
Arlo Guthrie - Miss the Mississippi and you.
Nina Simone - Mississippi goddam.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.