
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Dagur íslenskrar tungu er í dag og við forvitnuðumst um Íslenskuþorpið og um kennslu íslensku sem annars máls. Við hvetjum fólk til að læra íslensku, en gefum því svo oft ekki tækifæri til að æfa sig í leik eða starfi. Guðlaug Stella Brynjólfsdóttir, Hanna Margrét Einarsdóttir og Vessela Dukova spjölluðu við okkur.
Björn Malmquist ræddi meðal annars um stöðu mála í Úkraínu, leiðtogafund í síðustu viku og aðra sem eru framundan í þessari viku og kosningarnar á Spáni í spjalli í dag.
Valur Gunnarsson rithöfundur og sagnfræðingur var síðasti gestur þáttarins. Nýjasta bók hans, Frelsisbjarmar, fjallar um Bandaríkin í fortíð, nútíð og lítur til framtíðar. Hann ræddi um bókina og um stöðu lítilla ríkja á áhrifasvæðum stórvelda.
Tónlist:
Ellen Kristjánsdóttir, John Grant - Veldu stjörnu.
Magnús og Jóhann - Í timburhúsi við malargötu.
KK - Bráðum vetur.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.