
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Íbúakosning stendur fyrir dyrum í sveitarfélaginu Hornafirði um tillögu að nýjum miðbæ á Höfn. Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri sagði frá.
Hagstofan birti á dögunum upplýsingar úr nýrri lífskjararannsókn. Tekjujöfnuður er meiri hér en í flestum öðrum Evrópuríkjum og hlutfall fólks með tekjur undir lágtekjumörkum lægra. Anton Örn Karlsson deildarstjóri sagði frá.
Bretland og Evrópusambandið hafa gert með sér samkomulag um viðskipti og fleira. Björn Malmquist fréttamaður og Sigrún Davíðsdóttir blaðamaður í Lundúnum fjölluðu um samkomulagið.
Samband Íslands og Þýskalands á árunum 1933 til 1945 er efni doktorsritgerðar þýska sagnfræðingsins Florian Jacob. Florian sagði frá rannsóknarefninu.
Tónlist:
I'm thru with love - Kristjana Stefánsdóttir,
Hinn elskulegi garðyrkjumaður - Kristjana Stefánsdóttir,
Allein, in einer grossen Stadt - Marlene Dietrich,
Leben ohne Liebe kannst du nicht - Marlene Dietrich.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.