
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Það verður kosið í Bandaríkjunum á morgun, til fulltrúadeildarinnar og þriðjungs öldungadeildar, auk þess sem verið er að kjósa um ýmislegt annað í ríkjunum. Hver er staðan degi fyrir kjördag, hverju eigum við að fylgjast með og af hverju eru þessar kosningar taldar svona mikilvægar? Guðmundur Hálfdánarson prófessor emerítus í sagnfræði fór yfir stöðu mála.
Björn Malmquist fréttamaður í Brussel sagði frá deilum og mótmælum í Póllandi síðustu daga. Hann fór líka yfir leiðtogafund Evrópusambandsins og Kanada, sem var haldinn í Montreal í Kanada í síðustu viku, í samtali við Hallgrím Oddsson.
Það er kominn nóvember, veturinn er formlega hafinn og pestirnar eru komnar á stjá. Við ræddum um heilsu landsmanna í síðasta hluta þáttarins þegar Sigríður Dóra Magnúsdóttir forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins kom í þáttinn.
Tónlist:
Tina Dico, Emilíana Torrini - This Fire!.
Emilíana Torrini - Nothing brings me down.
Tina Dickow - Hjertestorm.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.