Morgunvaktin

Krefjandi aðstæður í efnahagslífinu en ekki kreppa

Í Stykkishólmi, eins og í öðrum sveitarfélögum, er nú unnið að fjárhagsáætlun nýs árs. Þar er íbúum boðið að senda inn tillögur eða hugmyndir að verkefnum eða öðru sem þeir vilja sjá gert. Jakob Björgvin Sigríðarson Jakobsson bæjarstjóri sagði frá íbúalýðræðinu sem viðhaft er í Hólminum.

Spjallað var um ástand og horfur í hagkerfinu við Katrínu Ólafsdóttur, dósent í hagfræði við Háskólann í Reykjavík. Nokkur slaki mælist en engu að síður hefur verðbólga staðið í stað. Katrín segir tiltrú skorta á að verðbólgan taki að hjaðna. Hún segir ekki útlit fyrir kreppu í landinu eins og nú horfir.

Arthúr Björgvin Bollason fór yfir þýsk málefni og sagði m.a. frá verðandi nýjum forseta Þýskalands, Ilse Aigner. Þá ræddi hann stuttlega við Pálma J. Sigurhjartarson sem lék á dögunum í sendiherrabústaðnum í Berlín.

Þá var rætt um sálfræði, um hugarmyndir. Andri Steinþór Björnsson, prófessor í klínískri sálfræði við Háskóla Íslands og sálfræðingur á geðdeild Landspítala, sagði frá hugarmyndum sem kunna að koma upp í huga fólks og valda miklum ranghugmyndum.

Tónlist:

New kid in town - The Eagles,

Take a Stand - Scott McLemore,

Höldum heim - Pálmi J. Sigurhjartarson,

Vindarnir dansa - Possibillies.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,